Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1989, Side 5

Skinfaxi - 01.06.1989, Side 5
Við tókum á og tókum til H-dagur á Ströndum. Strandamenn tœma einn ruslpallinn afmörgum á hreinsunardaginn. s A JL JL.taki ungmennafélag- anna, „Tökum á, tökum til”, lauk formlega 11. júní, þó á einstaka stað hafi hreinsun verið frestað um nokkra daga. Útlit er fyrir að um 8 þúsund manns hafi hreinsað með fram 6 þúsund km svæði af þjóðvegum landsins og í tonnum talið sennilega um 400 til 500. Enn einu sinni sýndu ungmenna- félögin hvers þau eru megnug. Það er ástæða til að fagna auknum áhuga á umhverfismálum og ungmennafélögin hafa ekki sagt sittsíðastaáþessu sviði. Reyndar hafa mörg ungmennafélög hreinsað með fram vegum á undanfömum árum en með þessu sameiginlega átaki var stefnt að því að vekja athygli á þeim ósóma að fólk hendi rusli úr bifreiðum eða annars staðar á víðavangi og fá almenning til að hugsa um þessi mál. Umfjöllun fjölmiðla hefur verið bæði mikil og jákvæð og ýmsir hafa stutt þetta verkefni með ágætum greinaskrifum eða á annan hátt. Ég vil fyrir hönd UMFÍ og allra ungmennafélaga á landinu þakka þeim fjölmörgu er lögðu átakinu lið og gerðu þetta þjóðarátak mögulegt. Það er sómi hvers manns að hafa tekið þátt í slíku verkefni. Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ. SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.