Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1989, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.06.1989, Blaðsíða 34
Æft á timbri Það þarf oft lítið annað en smá skammt af hugkvæmni og annan af framkvæmdasemi til að bæta íþróttaaðstöðu til muna eins og sést af framtaki nokkurra Skagfirðinga til að bæta æfingaaðstöðu til frjálsíþróttaiðkana. Trébrautin íSkagafirðinum. Þeir Skagfirðingar hafa m.a. notað hana fyrir œfingar í stuttu hlaupunum og í grindahlaupi. Friðrik Steinsson, UMSS, stendur hér við brautina. Friðrik Steinsson cefir langstökk á trébrautinni. í Skagafirðinum, rétt utan við Sauðárkrók, er að finna nokkuð óvenjulega aðhlaupsbraut fyrir langstökk, stangarstökk, þrístökk, fyrirkúluvarpáósköpvenjulegum velli. Eins og sést á myndunum hér er um trébraut að ræða sem þeir bræður Gísli og Gunnar Sigurðssynir í UMSS hönnuðu. Höfum það úr timbri Þannig er mál með vexti að á vormánuðum 1987 var verið að koma upp velli rétt utan við Sauðárkrók. Áður en aðhlaupsbrautir og kasthringir voru gerðir datt Gísla í hug hvort ekki væri mögulegt að gera þetta úr tré. Fyrirmyndin frá Ðandaríkjunum „Ég hafði séð þetta úti í Bandaríkjunum þar sem hlaupið er víða á tré innanhúss og það gekk ágætlega upp”, sagði Gísli í samtali við Skinfaxa. „Ég færði þetta í tal við bróður minn, Gunnar, sem er mikill fram- kvæmdamaður”, heldur Gísli áfram. Við settumst niður og gerðum riss að þessari braut. Ég var búsettur fyrir sunnan þegar þetta var en þegar ég kom aftur norður stuttu seinna var Gunnar búinn að skutla þessu upp.” 34 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.