Skinfaxi - 01.06.1989, Page 6
FrjálsíþróttadeiId Umf.
Skallagríms í Borgarnesi
hreinsaði 40 km leið í
Borgarfirði, um tvœr kerrur.
Myndin er tekin við lok
hreinsunar þegar fólkið fékk sér
hressingu.
Félagar í Völsungi frá
Húsavík hreinsuðu vegi
norðurfrá Húsavík og
eins og sést
einskorðuðu þeir sig
ekki við vegkantinn ef
með þurfti.
Félagarí Umf. Tjörnesinga við hluta af dagsfeng sínum. Þauföldu
hann reyndar á hak við sig þannig að hann sést ekki. Það sést hins
vegar að veðrið lék við Þingeyinga í hreinsuninni og að þeirra
sögn tókst hún mjög vel.
Hreinsaö aftur í aldir
UngmennafélagiðEflingíMývatnssveithrein.saðiaftur
í aldir í orðsins fyllstu merkingu. Á miðjum
laugardegínum voru krakkar í óða önn við að hreinsa
rusl við vegkandnn þegar þeir rákust á nokkuð sem
þeim sýndist vera mannabein. Þau hentu þvíekki beint
í pokann heldur færðu þau til sér eldri og reyndari. Við
nánari athugun, hringingu á Þjóðminjasafnið og ferð
GuðmundarÓlafssonar, fomieifafræðings til Mývatns,
kom í ljós að krakkarnir höfðu komið niður á görnul
kuml (gamla gröf frá 11. öld). Þessi fundur þykir
fomleifafræðingum nokkuð merkilegur. Það erekki á
hverjum degi sem ungmennafélagar rekast á slíkt í
hreinsunum sínum.
6
SKINFAXI