Skinfaxi - 01.06.1989, Qupperneq 19
Stefni á 1,80 m
í sumar
Þóra Einarsdóttir, einn efnilegasti hástökkvari
landsins í stuttu spjalii
Þóra Einarsdóttir, hástökkvari úr
UMSE, er einn fulltrúi nýrrar efnilegrar
kynslóðar í frjálsíþróttum, 18 ára gömul
frá Dalvík í Eyjafirði. Hún hefur verið í
frjálsíþróttum frá 14 ára aldri og ekkert
skipt sér af öðrum íþróttagreinum. 1
sumar er skammt stórra högga ámilli hjá
henni. Hún tók þátt í Kýpurleikunum í
vor og fór í júní með hópi Eyfirðinga í
æfingaferð til V-Þýskalands sem UMFI
hefur undirbúið. Auk UMSE fóru HSÞ,
UMSK, UMSS og UÍA í slíkar ferðir í
maí ogjúní. En auk þessarar utanferðar
gerir Þóra sér síðan vonir um að komast
með stúlknalandsliði FRÍ til Dublin í
keppni síðar í sumar.
Verðum sterk
í Mosfellsbæ
„Ég er búin að vera í frjálsum frá því ég
var fjórtán ára en þetta er fyrsta árið sem
ég æfi af einhverju viti, finnst mér. Ég er
búin að vera í Reykjavík í vetur í skóla
og hef verið á UMFI æfingunum í
Baldurshaga og svo hef ég líka fengið
inni hjá KRingum á æfingum. Ég hef
líka verið að lyfta þó nokkuð undanfarið
og það hefur skilað sér vel finnst mér.
Ég er búin að vera að æfa stíft í vor og er
nokkuð þung. En þetta er allt á réttri
leið. Svo er Jón Sævar Þórðarson farinn
að æfa UMSE liðið og við eigum eftir að
koma sterk á Landsmót UMFÍ í
Mosfellsbæ, næsta sumar. Því get ég
lofað þér.”
Miklar framfarir
Það er ár síðan Þóra stökk yfir 1.55 m.
Síðan stökk hún 1.63 m best á síðasta ári
og á Kýpur stökk hún 1.73 m. Þetta má
kallagóðarframfariráeinuári. Þóravar
spurð um reynsluna af Kýpurleikunum.
„Það var alveg frábært. Þetta var mjög
taugastrekkjandi en mjög skemmtileg
lífsreynsla. Það varð hálfgerður
misskilningur einn daginn með íslenska
frjálsíþróttahópinn sem gerði það að
verkum að ég kom of seint, kom beint
inn á völlinn, fékk aðeins tvær
æfingaatrennur í miklu hasti og síðan
átti ég strax að stökkva. Svo upplifði
maður sig eins og eitthvert smákríli. Ég
er nú ekki lágvaxin en leið eins og
einhverri smástelpu þarna inni á
leikvanginum. Þetta var fyrsta keppnin
mín í útlöndum og útkoman kannski
eftir því. En svo keppti ég á nokkuð
sterku alþjóðlegu móti á þessum
Þóra Einarsdóttir, hástökkvari.
leikvangi nokkrum dögum síðar og þar
stökkég 1.73 m. Þávarmesti skrekkurinn
kominn úr mér. Þetta var allt mjög
skemmtilegt og lærdómsríkt.
Svo voru aðstæðurnar alveg frábærar.
Þetta var alveg nýr völlur, ekki þriggja
mánaða gamall, og það lá við að
gerviefnið væri enn laust þegar mótið
fórfram, þetta varsvo nýtt. Ég myndi nú
gefa ýmislegt fyrir svona aðstæður, þær
eru alveg grátlegarhér heima. Við vorum
til dæmis að fá blokkir fyrir spretthlaupin
á völlinn á Dalvík og þær virðast vera
þannig að það er ekki hægt að festa þær
í brautina. Ætli eigi baraekki einhverað
standa fyrir aftan þær og ýta á móti. Það
er svo mikill áhugi fyrir fótbolta á Dalvík
að mestur krafturinn hefur farið í hann.
En þetta er nú að koma hægt og hægt og
það er gott fólk á Dalvík sem stendur við
bakið á sínu íþróttafólki.
Stúlknamet Þórdísar
En hvað sem aðstöðunni líður set ég
stefnuna á 1.80 m í ár”, segir Þóra
ákveðin. Að minnsta kosti að ná
stúlknametinu hennar Þórdísar
Gísladóttur sem er 1.76 m. Það er orðið
allt of gamalt met.”
Þóra var að fara út til Þýskalands daginn
eftir að rætt var við hana, á Vormóti
HSK og hún var spurð um UMSE liðið.
„Þetta er samstæður og skemmtilegur
hópur. Það er mjög góður andi og þetta
verður örugglega þræ 1 skemmti legt. Sem
dæmi um meðalaldurinn í hópnum munar
engu að ég sé aldursforsetinn”, segir
Þóra og hlær. Með það var þessi hressa
stelpa hlaupin.
IH
SKINFAXI
19