Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1989, Page 26

Skinfaxi - 01.06.1989, Page 26
Iþróttavöllurinn á Varmá í Mosfellsbœ. Þegar blaðiðfór í prentun var beðið eftir þurrki til að koma gerviefninu á brautirnar. Botnlaus mýri verður Landsmótsvöllur Þar sem áður var botnlaus mýri, að því er menn töldu, verður nú 20. Landsmót UMFí 12. til 15. júlí á næsta sumri, 1990. Þar sem nú er verið að reisa það sem á næsta ári verður orðinn glæsi legasti íþróttaleikvangur landsins, var áður mýrarfen hvar Bretar gáfust upp við að reisa skála og önnur mannvirki á stríðsárunum. Þá hefði sjálfsagt enginn spáð því að þarna kæmi grasvöllur með sex hlaupabrautum og atrennubrautum lögðum gerviefni eins og raunin verður á í sumar. Um er að ræða sex brautir allan hringinn og átta beinar brautir. Þegar veðurenglar leyfa Enda eru það ekki neinar smá upphæðir sem notaðar eru í uppbygginguna fyrir Landsmótið. Heildarkostnaður er áætlaður 100 milljónir króna, þar af um 60 milljónir innan nýja leikvangsins. Þegar þetta er skrifað er staðan’með lagningu gerfiefnisins sú að fyrirhugað var að ljúka vinnu við allt undirlag fyrir 15. júní. Fljótlegaúrþvíkomu v-þýskir verktakar til að leggja gerviefnið á völlinn og það gengur eftir því sem veðurenglar lofa. Gert er þó ráð fyrir að því verði lokið um miðjan ágúst. Nú er verið að vinna við fyrsta áfanga stúkunnar við völlinn og verður honum lokið nú í sumar. Þessi fyrsti áfangi mun rúma um 1000 manns. Þá er einnig verið að vinna við nýtt vallarhús og verður því lokið 26 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.