Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1993, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.02.1993, Blaðsíða 5
Á nýju ári í þessu 1. tölublaði Skinfaxa á nýju ári, er við hæfi að óska lesendum gleðilegs nýs árs. Eins og ávallt er nauðsynlegt við áramót að líta um öxl og skoða farinn veg, en ekki síður að líta til nýja ársins og reyna að ráða í hvað það muni bera í skauti sínu. Eins og allir vita var á síðasta ári mikið rætt um niðurskurð rfkisútgjalda. En slík umræða kom fram á nokkrum liðum fjárlaganna, m.a. á fjárveitingum ríkisins til UMFI og var framlag rikisins skorið niður um 1 milljón króna frá fyrra ári. UMFÍ eru því ætlaðar 9,5 milljónir króna frá ríkinu á nýbyrjuðu ári. Verð ég að segja það fyrir mig, að sú upphæð er ekki í nokkru samræmi við starf hreyfingarinnar, umfang og gildi starfseminnar fyrir land og þjóð. Ég tel það óheilla- þróun að fjárveitingar til aðila sem stunda upp- byggingarstarf, vinna fyrir börn og unglinga og leggja á sig mikið sjálfboðastarf skuli lækka milli ára og held ég að hugarfarsbreytingar sé þörf, þannig að meiri áhersla og fjármagn verði lagt til fyrirbyggjandi starfa, og þannig dregið úr þörfinni fyrir ,,viðhaldið,“ svo sem spítalana, áfengishælin (sem heita víst ,,með- ferðarstofnanir“) og fangelsin, að ekki sé minnst á heimilin sjálf og einstaklingana. Eins og við vitum sem störfum í ungmennafélögunum, er þar unnið mjög mikilvægt fyrirbyggjandi starf í áfengis- og fíkni- efnamálum, en nokkuð skortir á að það sé metið að verðleikum og því komið á framfæri, eins og vert væri. Almennt tel ég að ungmennafélögin og forystu- menn þeirra hafi ekki sinnt kynningarstarfi nægilega vel og alltof margir, raunar bæði innan og utan hreyfingarinnar, geri sér enga grein fyrir því hve mikið og nauðsynlegt starf hún vinnur. Vanþekking þessi er engum að kenna nema okkur sjálfum og því okkar að bæta þar úr. Ég held að auka verði verulega allt upplýsingastreymi út á við um starfsemina, jafnt í heimahéruðum, sem á vettvangi fjölmiðla sem hafa dreifingu á landsvísu. Þetta held ég að sé nauðsynlegt að hafa ofarlega í huga á nýbyrjuðu ári. Nú, í byrjun árs, fékkst loks endanleg staðfesting menntamálaráðherra á að aðalleikvangurinn á Laugar- vatni yrði tilbúinn til að taka á móti 21. Landsmóti UMFÍ árið 1994. Landsmótsnefnd sem HSK skipaði á síðasta ári hefur starfað af kappi við undirbúning og skipulagningu mótsins, enda hefst keppni strax í sumar í knattspyrnu. Þá verða lágmörk fyrir keppni í frjáls- fþróttum og sundi gefin út í vor. Af þessu má sjá að nauðsynlegt er fyrir ungmennafélögin og héraðs- samböndin að hefja nú þegar undirbúning sinn af fullum krafti til að þátttakan verði sem mest og glæsilegust í þessari stærstu íþróttahátíð sem haldin er á íslandi. Annar undirbúningur mótsins að hálfu lands- mótsnefndar er í fullum gangi og veitir ekki af þar sem hér er um mjög viðamikla framkvæmd að ræða og eru mörg járn í eldinum í einu. Ljóst er að aðstaðan á Laugarvatni verður mjög góð fyrir keppni og dvöl á staðnum, og stefnir landsmótsnefndin markvisst að því að mótið verði heildstætt, keppni í hverri grein fái notið sín, og allir þátttakendur og gestir verði þátt- takendur í heilbrigðri og skemmtilegri fjölskylduhátíð áLaugarvatni 14.-17. júlí 1994. Allir ungmennafélagar verða því að sameinast um að mótið takist vel og verði til aukins sóma fyrir okkar stóru og sterku samtök. Þórir Haraldsson, varaformaður UMFÍ TIL LESENDA SKINFAXA Lesendur Skinfaxa ættu að vera ófeimnir að senda blaðinu efni í formi stuttra greina, frétta og mynda. Góðar myndir og klausa um félagslíf vetr- arins er vel þegið efni, - frásögn af skemmtiatriðum á þorrablóti, leiklist- arstarfi, námskeiði og þar fram eftir götunum. Á sumrin eru íþróttirnar fyrirfefðarmestar. Myndir frá mótum heima í héraði eru skemmtilegt efni, svo ekki sé minnst á sitthvað eftir- minnilegt sem gerist í tengslum við keppni og æfingar. Stefna blaðsins.er m.a. sú, að flytja sem fjölbreyttast efni og segja frá starfi ungmennafélaga um allt land. Árangur í þeim efnum næst bestur með aðstoð ykkar, lesendur góðir. Munið, að allar ábendingar eru vel þegnar. Með framlagi frá ykkur tekst að gera Skinfaxa enn fjölbreyttari en ella. Með kveðju, ritstj. 5

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.