Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1993, Síða 7

Skinfaxi - 01.02.1993, Síða 7
meistaramótinu voru á annað hundrað keppendur og 131 á grunnskólameist- aramótinu.“ - Geta allir æft glímu? „Allir geta æft glímu en þeir hæfileikar sem koma sér best er að vera lipur og hafa gott jafnvægi. Það skiptir líka miklu máli að vera fljótur að hugsa og geta nýtt sér öll færi sem maður fær. Þú færð kannski bara eitt tækifæri í glímunni til þess að leggja andstæð- inginn, sem er jafnvel sterkari en þú, og þá er mikils um vert að nýta sér það. Þetta er mjög tæknileg íþrótt, líklega ein sú tæknilegasta sem stundaðar eru. Brögðin eru mörg, - þar af 8 höfuð- brögð sem unnt er að útfæra á 48 mismunandi vegu, auk þess sem hægt er að flétta þau saman á margs konar hátt. “ - A hvað leggur þú mesta áherslu í þjálfuninni? „Tæknin er mjög mikilvæg og ég brýni það fyrir mínu fólki að glíma vel og fallega og halda góðu jafnvægi. Ég legg áherslu á að þeir fari ekki á eftir andstæðingnum ofan í gólfið, þegar hann hefur verið felldur, - þeir skili honum vel frá sér en níði hann ekki niður. Mikilvægt er að glíman sé sem fallegust. I gamla daga var keppt í hæfniglímu og fegurðarglímu þar sem stíllinn skipti miklu máli. Þegar glímt er fallega verður jafnframt skemmtilegra að horfa á viðureignina." Gott gengi - Ykkur gekk vel á þorramótinu um daginn. „Við unnum 3 af 4 flokkum sem keppt var í, í flokki pilta 15 ára og yngri og í -80 og +80 kílóa flokki. Þetta var mjög góður árangur. Við vorum reyndar með mann í baráttusæti í fjórða flokknum líka, 16-19 ára, þann sem varð númer tvö.“ Sjö bikarmeistarar í glímu 1993, f.v. Lárus, Ólafur, Irena, Jóhannes, Stefán, Sabína og Ingveldur. Bikarglíma íslands: Keppt í fyrsta sinn í flokki kvenna 16 ára og eldri Kjartan leiðbeinir ungum glímumönnum, sem eru að stíga fyrstu skrefin á íþróttabrautinni. Myndir: Jón M. ívarsson. 7 21. Bikarglíma íslands fór fram 13. febrúar sl. að Laugarvatni. Glínid var jafnaðarglíma í útsláttarformi í fjórurn flokkum karla og þrem flokkum kvenna. Var það í fyrsta sinn sem keppt var í flokki kvenna 16 ára og eldri. Sigurvegarar í hverjum flokki hlutu farandbikara og aðra minni til eignar sem Flugleiðir hf. gáfu til mótsins. Keppendur voru 47 talsins frá fimrn félögunt og samböndum. Bikarmeistarar 1993 urðu eftirtaldir Konur: Ingveldur Geirsdóttir, HSK Meyjar: Sabína Halldórsdóttir, HSK Telpur: Irena Kristjánsdóttir, KR Karlar: Jóhannes Sveinbjörnsson, HSK Unglingar: Ólafur Sigurðsson, HSK Sveinar: Lárus Kjartansson, HSK Piltar: Stefán Geirsson, HSK Þorramótið Sveinar, 15 ára og yngri: 1. Lárus Kjartansson, HSK 9,80 2. Kjartan Kárason, HSK 4,40 3. Sigurjón Pálmarsson, HSK 4,20 Unglingar, 16-19 ára 1. Tryggvi Héðinsson, HSÞ 9,75 2. Ólafur Sigurðsson, HSK 7,50 3. Brynjólfur Þorkelsson, A 4,50

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.