Skinfaxi - 01.02.1993, Page 8
Fyrsti hópurínn sem gisti í þjónustumiðstöðinni í Fellsmúla 26 varfrá Grenivtk. Hér grípa
nokkrir krakkanna í spil.
Líf og fjör í þjónustumiðstöð UMFÍ:
Fullbókað í gistinguna
- allar helgar fram að páskum
Að undanförnu hefur verið unnið
mikið starf við að koma gistirýminu í
þjónustumiðstöð UMFI í Fellsmúlanum
í gott lag. Fjölmargir hafa lagt hönd á
plóginn við að innrétta, mála og annað
sem þurft hefur að gera.
Nú hafa verið tekin í notkun fjögur
herbergi, auk eldhúss, með öllum
búnaði. Enn er eftir að innrétta eitt
herbergi til viðbótar, svo og álmuna sem
hýsir sturtumar. Gistirýminu er tengdur
salur sem nýtist vel fyrir kvöldvökur,
töflufundi, eða sem setu- og sjónvarps-
stofa.
Nú geta allt að 60 manns gist í
þjónustumiðstöðinni í senn. Standa
vonir til þess að bráðlega verði hægt að
láta smíða fleiri kojur og kaupa dýnur
til þess að auka gistirýmið. Ekki mun af
veita, því frá áramótum og fram að
páskum hefur verið og verður fullbókað
hverja einustu helgi. Hefur orðið að vísa
frá fólki af því að það hefur einfaldlega
ekki verið pláss fyrir íleiri.
Þá er vaxandi nýting á virkum
dögum. Hið nýja húsnæði býður upp á
slíka möguleika í auknum mæli. Þeir
sem hafa hug á að nýta sér þessa
þjónustu geta pantað í sírna UMFÍ 91-
682929.
Umf. Njarðvíkur:
Gunnar fékk
starfsmerki
Ungmennafélag Njarðvíkur hélt aðal-
fund sinn 30. janúar sl. Pálmi Gíslason
formaður UMFÍ veitti Gunnari Þórar-
inssyni starfsmerki UMFI fyrir vel unnin
störf í þágu ungmennafélagsins, svo og
íþrótta á Suðurnesjasvæðinu. Þá var
íþróttamaður Njarðvíkur útnefndur. Nafn-
bótina hlaut að þessu sinni Teitur Örlygs-
son körfuboltamaður. í öðru sæti varð
Geir Sverrisson sundmaður og Óskar Öm
Hauksson í því þriðja. Sá síðastnefndi er
aðeins 8 ára og var tilnefndur fyrir
knattspymu.
Júlíus Valgeirsson hlaut viðurkenn-
ingu fyrir uppbyggingu og eflingu yngri
flokka. Hann hefur þjálfað yngri flokkana
í körfuknattleik um árbil og náð mjög
góðum árangri. Viðurkenningin var gefín
af fjölskyldu Ólafs heitins Thordersen,
sem var einn af heiðursfélögum UMFÍ.
Ólafur lést á síðasta ári. Viðurkenningin
verður veitt árlega.
Á aðalfundinum skilaði undirbún-
ingsnefnd að byggingu íþróttamannvirkis
fyrir UMFN skýrslu og teikningum.
Teikningarnar voru til sýnis á fundinum
og vöktu mikla athygli. I nefndinni eiga
sæti: Gunnar Þorvarðarson, Gunnar
Þórarinsson og Jónas Jóhannesson, allt
kunnir íþróttagarpar í Njarðvíkum.
Talsvert var rætt um sölu á eignum
ungmennafélagsins, þ.e. hluta í lóð við
Stapann. Voru menn ekki á einu máli um
hvort selja skyldi eða ekki. Niðurstaðan
varð sú, að ákvörðun var tekin um að
selja ekki.
Þá var kynnt á fundinum getrauna-
þjónusta UMFN fyrir bæjarbúa. Hefur
félagið fest kaup á búnaði, sem notaður
verður í því skyni.
Stjórn félagsins var endurkjörin. For-
maður er Haukur Jóhannesson, gjaldkeri
Steinunn Sighvatsdóttir og ritari Logi
Úlfarsson.
69. ársþing UMSK:
Hvetur stjórnvöld til að stórauka framlög til íþróttamála
Á 69. ársþingi UMSK, sem hald-
ið var 7. febrúar sl. í Stjörnu-
heimilinu í Garðabæ, voru
skattamálin sá málaflokkur, sem
hæst bar. Allmargar tillögur
voru samþykktar, þar á meðal
eftirfarandi:
69. ársþing UMSK beinir því til
stjórnar UMFÍ að beita sér fyrir því að
á Landsmóti UMFÍ 1994 verði keppt í
2. aldursflokki í stað meistaraflokks, í
knattspyrnu karla.
Þá hvetur þingið stjórnvöld til að
stórauka framlög til íþróttamála og
viðurkenna með því að forvarnarstarf
íþróttafélaga hafi aldrei verið brýnna
en nú um þessar mundir.
Loks hvetur ársþing UMSK ÍSÍ til
að halda sérstakan fund um skattaskil
félaganna með formönnum héraðssam-
bandanna. Þessi fundur verði haldinn í
tengslum við sambandsstjórnarfund nú
í vor.
Á þinginu var kjörinn nýr for-
maður, Svanur M. Gestsson, UMFA.
Hann tekur við af varaformanni
UMSK, Hraunari Daníelssyni, sem
hafði gegnt formennsku frá því að
Hafsteinn Pálsson tók sæti í fram-
kvæmdastjórn ISI.
8