Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1993, Side 12

Skinfaxi - 01.02.1993, Side 12
Þrír ungir herramenn hrœra stöppurnar og greinilega eru þœr nógu heitar! Þorrablót og hestamannakaffi í Hraungerðishreppi í Flóa er hið árlega þorrablót sveitarinnar í umsjá Ungmennafélagsins Baldurs, sem starf- ar þar í sveit. Það er stjórn og skemmtinefnd félagsins hverju sinni sem skipuleggur og sér um framkvæmd blótsins að öllu leyti. í ár var engin undantekning gerð frá reglunni, Baldursmenn undirbjuggu blótið af kostgæfni, bjuggu samkomusalinn sem best þeir kunnu og buðu upp á ýmis konar góðgæti. Ekki var andinn látinn svelta, því leikhópur hreppsins flutti klukkustundar langan annál um ýmislegt það sem gerst hafði á árinu 1992. Var sá flutningur á léttari nót- unum, byggður á söng og leik. Síðan var stiginn dans fram eftir nóttu í hinu nýja félagsheimili í Þingborg, sem tekið var í notkun á síðasta ári. Hefur það bætt félags- og íþróttaaðstöðu hrepps- búa verulega, enda tók allt félagsstarf mikinn fjörkipp með tilkomu þess. Næst á döfinni hjá Umf. Baldri er svokallað hestamannakaffi, sem einnig er haldið í Þingborg. Þar er boðið upp á kaffi og með því á hóflegu verði. Koma hestamenn ríðandi víða að til þess að hittast yfir rjúkandi kaffisopanum. VÍSNAÞÁTTUR Fleiri mættu að ósekju senda botna í vísnaþátt Skinfaxa, en greinilegt er á bréfum, sem berast, að fólk vill ekki að þátturinn falli niður. Lesandi sem kýs að kalla sig VÞS sendir botn við fyrripart, sem birtist í 3. tbl. síðasta árs, með þessum orðum: „Þar sem ég fell undir þann flokk sem pennaletin er að drepa, eru mín viðbrögð seint á ferð, auk þess sem ég er frekar þekktur fyrir annað en skáldskap.“ Hann hvetur fólk til bjartsýni á eftirfarandi hátt: Vetur nálgast nöpur tíð nú mun taka völdin. Söngur, list og ljósin fríð lífga upp á kvöldin. Vignir Örn Pálsson sendir eftir- farandi botn og segir m.a. í bréfi sínu: „Það er allt gott að frétta af Ströndum, atvinnuástand gott miðað við víða annars staðar. Fiskirí mjög gott hjá línubátum á Hólmavík og bara gott hljóð í fólki.“ Horfðu fram á hlýlegt ár þá hjartans óskin rætist. Ég gleymi öllu urn gömul sár, á gleðistundu kætist. Ásgrímur Gíslason lætur sitt ekki eftir liggja. Hann kýs að hafa vísurnar svona: Horfðu fram á hlýlegt ár þá hjartans óskin rætist, að styttist þetta stjómarfár, þá stend ég upp og kætist. Megi gróa sérhvert sár, sorg og tregi bætist. Ég hvet enn fleiri til að senda botna og set fram fyrripart sem vonandi á við, þegar vorblað Skinfaxa kemur út í maí/júní. Sumar rennur senn í hlað og sunna vermir grundu. Með bjartsýniskveðjum til allra vísnavina. Ingimundur. 12

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.