Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1993, Qupperneq 13

Skinfaxi - 01.02.1993, Qupperneq 13
FLOSI JÓNSSON UMSE: STEFNI Það vakti óskipta athygli á dög- unum þegar gullsmiðurinn frá Akureyri, Flosi Jónsson, sló 15 ára gamalt íslandsmet Gústafs Agnarssonar í langstökki án atrennu. Gamla metið var 3.44 metrar en Flosi stökk 3.45 og þrjú stökk hans voru yfir 3.40. Það vakti jafnframt athygli að Flosi var talsvert eldri en aðrir keppendur. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að hann á aðeins eitt ár í fertugt og hefur æft lyftingar um árabil. Aðspurður kveðst hann ekki hafa æft langstökk mikið um dagana og í raun sé þar um aukagetu hjá sér að ræða. „Þannig er mál með vexti að ég byrjaði að stunda ólympískar lyftingar 1969, þá 15 ára gamall, og æfði þá grein í 2 ár. Ég átti síðan ekkert við þetta í allmörg ár en byrjaði aftur þegar ég flutti hingað norður 1979 og hef æft kraftlyftingar nánast samfleytt síðan. Það var svo fyrir sjö árum að ég keppti í langstökki án atrennu á jólamóti hérna. Mér gekk mjög vel, fékk byr undir báða vængi og var sendur á íslandsmótið sem haldið var í Keflavrk skömmu síðar og sigraði. Þetta var óslitin sigurganga hjá mér fyrstu árin. Eitt árið varð ég fyrir því óláni að heltast fyrir mót og datt ég niður í silfur. í fyrra varð niðurlæging mín enn meiri þegar ég hrapaði niður í brons. Þá hugsaði ég með sjálfum mér að nú yrði ég að taka á honum stóra mínum - og stóð við þá ákvörðun mína þó svo að ég hafi ekki einbeitt mér að langstökkinu allan tímann. Ég hef yfirleitt ekki mikinn tíma til þess að æfa vegna atvinnu minnar auk þess sem ég vil ekki láta íþróttirnar taka of mikinn tíma frá fjölskyldunni. Þess vegna tók ég þann pól í hæðina að sleppa öllum hoppum um sinn og stunda lyftingarnar þess í stað. Ég hef tekið mjög stuttar æfingar og lyft mjög létt til þess fyrst og fremst að létta mig og komast í betra form.“ Lyftir reglulega - Hvernigfara menn að því að halda sér í svo góðuformi, 39 ára gamlir? Á 3.50 METRANA Flosi Jónsson í léttri sveiflu í Baldurshaga. „Ég sit við vinnu mína lengstan hluta dagsins og verð því að hreyfa mig á öðrum vettvangi. Ég lyfti reglulega þrisvar til fjórum sinnum í viku. Ég syndi líka töluvert. Ég lít á lyftingarnar í raun eins og hvert annað trimm, því að það er hægt að æfa þær á svo mis- munandi vegu. Það er unnt að æfa þær nokkuð hratt, eins og ég geri, og einnig að dúlla sér í gegn um prógrammið hægt og rólega. Ef þú ferð hratt í gegn- um það færðu smá úthald líka. Þú færð mjög góða æfingu með því að lyfta lóðum. Þetta getur verið býsna fjölbreytt auk þess sem þú ræður sjálfur á hvaða hraða þú ferð í gegnum æfingarnar. Maður getur tekið þetta eins og hverja aðra þrekæfingu þar sem þú tekur nánast alla liði líkamans fyrir, en slíkt er góð undirstaða undir allar íþróttir. Ég hef ekki tíma né áhuga á því að æfa lyftingar af fullum krafti þó ég hafi gert það um tíma. Kraftlyftingar eru það erfið íþrótt að maður verður að stunda þær af mjög miklu kappi ætli maður að halda sér í fremstu röð. Það nægir mér að geta skrölt með, eins og sagt er, með þokkalegum árangri. Mataræðið skiptir auðvitað líka miklu máli. Ég er meðvitaður um það sem ég læt ofan í mig en borða engu að síður allan venjulegan mat, - íslenskan og góðan mat, meira að segja þorramat. Ég sleppi öllu sælgætisáti og reyni að forðast að láta ofan í mig það sem telst óhollt. Ætli heilsusamlegt líferni eigi ekki líka stóran þátt í velgengni minni og úthaldi á íþróttasviðinu. Ég hef aldrei reykt og það má segja að ég sé bind- indismaður. Mig langar til þess að komast í 3.50 metra áður en yfir lýkur og stefni að því núna, - hvenær svo sem ég á eftir að ná því takmarki, ef ég næ því nokkurn tíma. “ 13

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.