Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1993, Page 14

Skinfaxi - 01.02.1993, Page 14
Logi Kristjánsson formaður Breiðabliks: Skemmtilegt aö starfa í Breiðabliki „Það er mjög skemmtilegt aó vera í og starfa með Breiðabliki. Um það held ég að allir séu sammála, sem þangað hafa komið til starfa, hvort sem um er að ræða stjórnunarstörf eða til íþróttaiðkunar.“ Þetta segir Logi Kristjánsson for- maður Breiðabliks í Kópavogi. Það hefur ýmislegt verið á döfinni hjá félaginu að undanförnu og enn fleira framundan. 1989 var Breiðabliki úthlutað 8 hektara landssvæði í Kópa- Svœði Breiðabliks í Kópavogsdal. vogsdal. Félagið lét skipuleggja svæðið og gerði samning við Kópavogsbæ um uppbyggingu á því. Fyrsta verkefnið var bygging sandgrasvallar og var hann tekinn í notkun fyrir tveim árum. Hann hefur verið mjög mikið notaður og sýnt það og sannað að mikil þörf var fyrir slíkan völl. Þá er fyrirhugað að byggja íþróttahús og hefur þegar farið fram útboð á framkvæmdinni. „Það er löngu orðið Ijóst, að það hefur háð allri starfsemi félagsins að hafa ekki betri samastað en við höfum haft nú um árabil,“ segir Logi. Fyrirhugað er að taka húsið í notkun haustið 1994 og stefnt að því að það verði fullbúið 1995. í því verður stór íþróttasalur. Stærð hans hefur ekki verið fastákveðin enn. í honum verður bæði æfinga-og keppnisaðstaða fyrir íþrótta- flokka Breiðabliks. I húsinu verður einnig aðstaða fyrir líkamsrækt, þrek- æfingar, almennur salur fyrir leikfimi allra aldursflokka, gufubað, ljósabekkir og heitur pottur. Þá verður gert ráð fyrir veitingaaðstöðu, félagsherbergi og fundaherbergi. I stuttu máli er gert ráð fyrir að þarna rísi myndarleg íþrótta- og félagsmiðstöð. „Það fer fram geysilega mikil fé- lagsstarf í Breiðabliki,“ segir Logi. „Það er mjög mikils virði að koma því undir eitt þak. Við sjáum það með þessu litla húsi sem við settum niður við völl- inn. Það má ekki vera mikið um að vera til þess að það sé orðið sneisafullt, þann- ig að fólk jafnvel veigri sér við að koma inn úr dyrunum. Foreldrar, sem eru að aka börnum sínum á æfingar þurfa að geta komið inn, fengið sér kaffisopa, rætt málin og komið sínum skoðunum á framfæri. Við leggjum mjög mikið upp úr því að hafa sem best tengsl við foreldrana og höfum unnið markvisst að því að efla þau. Það skiptir miklu máli, að samvinna við þá sé góð.“ Aðstaða fyrir alla Þá er fyrirhugað að bæta aðstöðu fyrir þá sem iðka frjálsar íþróttir innan Breiðabliks. Félagið hefur gert samning um lagfæringu á næst-nyrsta hluta útisvæðisins vestan við Kópavogsvöll- inn. Þar er fyrirhugað að koma upp kastsvæði. Er vonast til að í framhaldi af því verði hægt að skipta um jarðveg á svæðinu þar fyrir sunnan, sem síðan yrði tekið undir æfingar fyrir knatt- spymudeildirnar. Þá má nefna nýja skíðaskálann í Bláfjöllum og sundlaugina í Kópavogi. Innan félagsins eru nokkrar deildir sem ekki er getið sérstaklega hér að aftan. Blakdeild Breiðabliks hafði skil- að miklum og góðum árangri á sínum tíma. En unglingastarfið var ekki sem skyldi, þannig að deildin hætti starfsemi í haust. Tennis- og badmintondeildin var starfrækt fyrir nokkrum árum, en hætti svo og hefur ekki verið sett af stað aftur vegna aðstöðuleysis. Fyrirhugað er að veita tennisfólki aðstöðu á sand- grasvellinum. Hefur verið ákveðið að halda deildinni vakandi og koma upp aðstöðu fyrir slíka iðkun á næstu árum. Ekki hefur verið lagt sérstaklega í ruðningsdeildina, sem stofnuð var fyrir fáeinum árum, enda hafa menn fremur lagt áherslu á að byggja upp það starf sem fyrir hefur verið. „Eg tel þó, að ruðningsdeildin, sem byggir ekki á þessum hefðbundnu boltaíþróttum, eigi fyllilega rétt á sér,“ segir Logi. „Hún auðgar starfsemi félagsins og gefur því viðbótarvídd. Nú ætlum við í vaxandi mæli að reyna að þjónusta fjölskylduna sem slíka. Þegar fjarlægðirnar eru orðnar svona miklar og foreldrar verða að aka börnunum á æfingar þá verðum við að hafa fjölbreytni svo að þeir geti brugðið sér í bolta, æfingar eða trimm, meðan þeir bíða eftir börnunum." 14

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.