Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1993, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.02.1993, Blaðsíða 15
Nýstárleg stefnumótun Svipmynd úr leik 3. flokks karla sl. sumar. Breiðablik hefur farið nýstárlega leið til þess að marka og samhæfa stefnu sína varðandi starfsemi hinna fjölmörgu deilda. Forsvarsmenn félags- ins hafa fengið ráðgjafa frá Hagvangi, Reyni Kristjánsson, til þess að stýra vinnu við stefnumótunina. „Þegar menn eru með stórfyrirtæki, eins og Breiðablik, þá þarf að hleypa af stað umræðu um hvert beri að stefna og hvernig við viljum sinna því þjónustu- hlutverki, sem við höfum tekist á hendur gagnvart æskulýðnum og öðrum bæjarbúum. Hvernig stöndum við sam- an að því að framkvæma þessa hluti? Hvernig getum við komið til móts við þá sem stunda fleiri en eina íþrótta- grein, varðandi æfingagjöld, varðandi skipulag á tímum og fleira þess háttar? Hversu margar deildir ætlum við að starfrækja? Allt eru þetta spurningar sem leitað er svara við. Að undanförnu hefur verið í gangi mikil umræða varðandi greiðslur til meistaraflokkanna og að um væri að ræða mikla fjármuni. Þetta er orðum aukið, en engu að síður sjáum við að íþróttafélög og -sambönd eru í miklum fjárhagsvandræðum, meðal annars út af svona greiðslum. Við verðum í þessu sambandi að skoða okkar fjárhagslega rekstur mjög náið og gerum það best með því að virkja félagana til þess að fara yfir þá stöðu og meta hana. Við höfum ætlað okkur nokkur ár í að gera félagið að mjög öflugu þjónustutæki fyrir Kópavogsbúa, teljum okkur geta gert betur en nú og reynum að gera það á sem hagkvæmastan máta.“ Sá starfshópur sem vinnur að stefnumótuninni, og í eiga sæti fulltrúar allra deilda félagsins, hefur nú skilað ábendingum til aðalstjórnar. Er gert ráð fyrir að í sumar eða næsta haust sé hægt að fara að vinna samkvæmt þeirri áætlun sem mótuð hefur verið. Síðan er gert ráð fyrir því að á aðalfundi 1995 verði farið yfir það sem áunnist hefur og lagðar fram tillögur um það sem betur má fara í uppbyggingunni. Hjá Breiðabliki er lögð mikil áhersla á starf fyrir börn og unglinga. Hér erþað Unnur Yr Konráðsdóttir, sem skýtur hressi- lega að marki í Gull- og silfurmótinu. VIÐ BJÓÐUM 16 2/3 m innilaug 25 m útilaug Heita potta Gufubaðstofu Sólarbekki SUMAROPNUN Mánudaga - föstudaga 07 - 21.1 5 Laugardaga 07 - 17.30 Sunnudaga 10 - 16.30 VETRAROPNUN Mánudaga - föstudaga 07 - 21.15 Laugardaga 08 - 15.30 Sunnudaga 10-15.30 -V~ úáá l '—-v,' I l| j/wd -ikK 15

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.