Skinfaxi - 01.02.1993, Síða 16
Kvennaknattspyrnan:
Mikill hugur í stelpunum
I kvennaknattspyrnunni hjá
Breiðabliki eru nú starfræktir
fimm flokkar, þ.e. meistara-
flokkur, og 2., 3., 4., og 5. flokkur.
Þá eru að fara af stað tilraunir
með flokk sem nefndur er 8.
flokkur. Hann verður blandaður,
bæði strákar og stelpur, yngri en
8 ára.
„Það er geysilega mikil gróska í
kvennaknattspyrnunni og mikill hugur í
stelpunum,“ sagði Ingibjörg Hinriks-
dóttir formaður Meistaraflokksráðs
kvenna.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað
innan deildarinnar á síðari árum, því
fyrir fáeinum árum voru aðeins tveir
flokkar í kvennaknattspyrnunni. Það
voru meistaraflokkur og svonefndur
yngri flokkur kvenna. En 1986 kom 3.
flokkur inn og í kjölfarið fór flokkunum
að fjölga.
„Það er fyrst og fremst reynslan sem
eldri stelpurnar hafa öðlast í gegnum
tíðina sem hefur eflt starfið og komið
því í þann farveg sem það er nú í. Þær
hafa tekið að sér þjálfun, auk þess sem
margar þeirra hafa eignast dætur, sem
voru þá fæddar inn í fótboltann, ef svo
má segja. Stelpurnar hafa verið
ákveðnar að berjast fyrir sínu og haft
árangur sem erfiði. Svo hefur stjórn
Breiðabliks stutt mjög vel við bakið á
okkur.
Breiðablik fór af stað með kvenna-
knattspyrnuna upp úr 1970. Arið 1976
unnu þær sinn fyrsta titil og urðu ís-
landsmeistarar utanhúss. Sá titill lagði
eiginlega þá skyldu á herðar stjórninni
að hlúa vel að þessum meistaraflokki
sínum, sem hún gerði. Hún hefur staðið
mjög vel með kvennaknattspyrnunni
allar götur síðan.“
Fleiri titlar
Breiðabliksstúlkurnar áttu eftir að
gera betur en þetta, því þær urðu
íslandsmeistarar fimm ár í röð, 1979-
1983. Þær hafa einnig unnið þann
eftirsóknarverða titil síðastliðin þrjú ár.
Bikarmeistarar urðu þær 1981-1983 og
voru því tvöfaldir meistarar þrjú ár í
röð.
„Núna erum við með stóran og
breiðan hóp knattspyrnukvenna. Þær,
sem ætla sér að komast inn í ellefu
manna hóp, leggja mjög hart að sér. Það
er æft fjórum sinnum í viku yfir
vetrartímann, þegar ekkert er leikið.
Þessar stelpur gera sér fulla grein fyrir
því, að þær ná ekki árangri nema með
því að leggja talsvert á sig.“
Þjálfari meistaraflokksins er Steinn
Helgason, sem þjálfaði landsliðið sl.
tvö ár og unglingalandsliðið þar áður.
En það er ekki einungis meistara-
flokkurinn, sem hefur átt velgengni að
fagna, því 2. flokkur hefur staðið sig
mjög vel. Á síðasta ári tapaði hann til
dæmis ekki einum einasta leik. Hann
vann íslandsmeistaratitilinn, bæði
innanhúss og utan. Einnig urðu stúlk-
urnar Faxaflóameistarar. Þjálfari 2.
flokks er Jón Ottarr Karlsson. Vanda
Sigurgeirsdóttir landsliðsfyrirliði og
leikmaður Breiðabliks þjálfar 3. flokk-
inn.
Yngri flokkarnir hafa einnig staðið
sig mjög vel og eru miklar vonir bundn-
ar við þá.
Áhersla lögð á grunninn
„Varðandi yngri flokkana höfum við
ekki lagt áherslu á þá sem keppnis-
ilokka, heldur fyrst og fremst að búa til
góðan grunn, þannig að við fáum góðar
knattspyrnukonur út úr yngri flokkun-
um. Þær eiga að vera tilbúnar, þegar
þær koma upp í harða keppni í 3.
flokki. Áherslan er lögð á að kenna
þeim undirstöðuatriðin og þjálfa þær
vel, áður en til alvörunnar kemur.
Það hafa ýmsir verið með hrakspár í
garð Breiðabliksliðsins fyrir næsta
sumar og telja að stelpurnar komi ekki
til með að standa sig. Ástæðan er sú að
við höfum fengið liðsstyrk. Ýmsir
óttast, að það verði til þess að liðið nái
ekki saman. En við hlustum ekki á slíkt.
Við erum að vinna í þessum málum og
ætlum meðal annars í æfingaferðir út á
land og taka helgarnar í að byggja upp
félagslegan anda og styrkja samheldn-
ina. Það er til dæmis fjölskyldudagur
hjá stelpunum í dag. Þar mæta þær með
börnin sín, kærasta, eða foreldra og eiga
góðan dag saman. Þannig að lífið snýst
ekki bara um fótbolta, heldur einnig að
búa til góðan og samstilltan hóp, sem
hefur gaman af því sem hann er að
gera.“
16