Skinfaxi - 01.02.1993, Qupperneq 18
■«
Nýi skálinn hleypti auknu lífi í staifsemi skíðadeildarinnar.
Vilium sem flesta á skíöi
„Markmiðið hjá okkur er að
koma sem allra flestum á skíði,
og þá ekki síður fullorðnum en
börnum,“ sagði formaður
skíðadeildar Breiðabliks, Óttar
B. Ellingssen. Skíðadeildin
minntist merkra tímamóta í
desember á síðasta ári, því þá
hafði hún starfað í rétt 20 ár.
Fyrir rúmum þrem árum var hafist
handa við að byggja stóran og glæsileg-
an skála fyrir skíðaunnendur úr Kópa-
vogi í Bláfjöllum. Hann er samtals 703
fermetrar að grunnfleti og var tekinn í
notkun 15. mars 1991. Hann hlaut nafn-
ið Breiðablik-Skíðamiðstöð Kópavogs.
„Þessi skáli hefur verið okkur mikil
lyftistöng og myndast mikil gróska í
kringum þessa góðu aðstöðu sem við
höfum nú yfir að ráða.“ sagði Ottar.
„Fyrsta árið sem skálinn var í notkun
voru iðkendur 36 talsins. Næsta ár urðu
þeir 86 og í fyrra 120. Nú erum við með
í kringum 90 krakka og ráðum
eiginlega ekki við fleiri.
Foreldrastarfið hefur heppnast mjög
vel og foreldrarnir eru mjög vel virkir.
Mikil uppbygging
Skíðadeild Breiðbliks hefur átt
fulltrúa á Andrésar-Andar leikunum af
og til á undanförnum árum. Tvö síð-
astliðin ár hefur hún átt keppendur á
verðlaunapalli og hefur árangurinn farið
batnandi á milli ára.
„Á öðrum mótum hefur okkur ekki
tekist að vinna til verðlauna,“ sagði
Óttar. „Við erum að byggja deildina
upp og það er fyrst núna sem 13 og 14
ára iðkendurnir gætu átt einhverja
möguleika. I 15 og 16 ára hópnum eru
einungis fjórir og þeir byrjuðu ekki fyrr
en fyrir þrem árum hjá okkur.
Á síðasta ári réðum við nýjan
yfirþjálfara, Guðmund Jónsson frá ísa-
firði. Eins og margir vita er hann marg-
faldur íslandsmeistari í svigi og stór-
svigi og væntir deildin sér mikils af
samstarfinu við hann.
Markmið starfsins
Skíðadeildin hefur það að markmiði
að gefa sem allra flestum kost á að vera
á skíðum.
„Við stefnum meðal annars að því
að koma fullorðna fólkinu einnig á
skíði, með því að bjóða því aðstöðu
uppfrá og kannski einhverja tilsögn.
Svo höfum við áhuga á að koma af stað
gönguhópum á skíðum. Við reyndum
það aðeins í fyrra og urðum varir við
mikinn áhuga. Veðráttan setti hins
vegar strik í reikninginn, því það var
sjaldnast hægt að vera á skíðum um
helgar. Við fórum þó einum tíu sinnum
og þetta var svona fimmtíu manna
hópur, allt í allt.
1 vetur höfum við ekki komið þessu
í gang vegna veðráttunnar.
En það sem við leggjum höfuð-
áherslu á, er að skíðaiðkunin er fjöl-
skylduíþrótt og öll fjölskyldan getur
stundað þetta sarnan. Þar getur hún
sameinað það tvennt, að njóta sam-
verunnar og stunda holla útiveru í fögru
umhverfi."
18