Skinfaxi - 01.02.1993, Síða 19
Allir saman í karate
„Það er mikill áhugi fyrir karate
og hjá okkur æfir nú fastur kjarni
á aldrinum 7-19 ára. Þetta eru
svona 25 manns, sem æfa
þrisvar í viku,“ sagði Karl Gauti
Hjaltason yfirþjálfari karate-
deildar Breiðabliks.
Æfingarnar í karate eru frábrugðnar
flestum öðrum íþróttaæfingum að því
leyti, að þar æfa allir saman, kvenkyns-
og karlkynsiðkendur á öllum aldri.
Strákarnir hafa verið í miklum meiri
hluta, eða um 80 prósent iðkenda.
„Þetta er einkenni karate-íþrótt-
arinnar, að þar eru allir saman,“ sagði
Karl Gauti. „Það er ekkert erfitt að
vinna með svona blönduðum hóp. Ég
hugsa þó, að það næðist meiri árangur,
ef það væri nógu mikill fjöldi í félaginu
til þess að hægt væri að skipta hóp-
unum niður í aldursflokka. En þá missir
maður þann góða anda, sem ella skap-
ast. Þarna eru allir vinir, litlu krakkarnir
og fullorðna fólkið. Það eru allir að
gera það sama og þarna skapast frábær
andi. I einlitari hóp örlar ef til vill meira
á metnaði."
Karl Gauti sagði að talsvert bæri á
því að unglingar hættu að iðka karate
þegar þeir kæmust á gelgjuskeiðið. Þá
fyndist þeim þeir hafa ýmislegt annað
að gera. Síðan kæmu margir þeirra aftur
eftir tvö ár eða svo.
Verðlaun í hús
Karatedeild Breiðabliks hefur tekið
þátt í mótum og fært verðlaun í hús. Er
skemmst að minnast Unglingameist-
aramótsins í karate sem haldið var nú
eftir áramótin. Þar vann karatedeild
Breiðabliks til átta verðlauna og hafn-
aði í 3. sæti. Munaði ekki miklu á
árangri keppenda hennar og hinna sem
náðu 2. og l. sæti.
„Þetta er mjög góður árangur, ekki
síst vegna þess að við höfum verið að
missa fólk að undanförnu,“ sagði Karl
Gauti. „Aðalmaðurinn hjá okkur hélt til
útlanda í fyrra. Þá höfðum við verið
með erlendan þjálfara í tvö ár, en hann
hætti einnig. Við héldum því að
baráttan yrði erfið, þegar við tókum við
þjálfuninni í haust, ég og Ævar
Þorsteinsson. En þetta hefur gengið
framar öllum vonum. Árangurinn er
mest að þakka góðum anda í liðinu. Það
er mjög skemmtilegt að vinna með
þessum krökkum. Við fórum á þetta
mót með það í huga að gera okkar
besta, en það varð bara miklu meira en
við höfðum þorað að vona.“
Ýmislegt á döfinni
Það er ýmislegt á döfinni hjá
karatedeildinni núna. Innanfélagsmót
var á dagskránni, að afloknu Unglinga-
meistaramótinu. Þá má nefna sam-
æfingu í Digranesskóla, þar sem karate-
deild Breiðabliks hefur æfingaaðstöðu.
Þá koma félagar í karatefélögum af öllu
landinu saman og æfa. Á slíkar æfingar
geta mætt á annað hundrað manns, en
karatedeild Breiðabliks er gestgjafinn
að þessu sinni.
Nú á deildin fulltrúa, Ólaf Nielsen, í
unglingalandsliðinu í karate, og eru
vonir bundnar við frammistöðu hans.
„Ég er mjög ánægður með þennan
hóp, sem við erum að þjálfa núna, og
mér sýnist að hann eigi að geta náð
langt.“
GÓÐÍÞRÓTT, GULLI BETRI
*** 200 KÓPAVOGUR ***
Júmbó matvælaiðja hf.
Kársnesbraut112
Handknattleiksfélag Kópavogs
Digranesvegi íþróttahöll
Digranesskóli
Skálaheiði
Bæjarfógetaskrifstofa Kópavogi
Auðbrekku 10
Elsi, heildverslun
Hafnarbraut 23
Sparisjóður Kópavogs
Digranesvegi 10
Slökkvitækjaþjónustan
Hafnarbraut 10-D
Verkfræðistofa
Þórhalls Jónssonar
Hamraborg 7
Vélsmiðja Sigurðar H. Þórðars. hf.
Skemmuvegi 16m
Markholt hf
Reynihvammi 22
Niðursuðuverksmiðjan Ora
Vesturvör 12
Nýtt hugvit sf.
Hlíðarhjalla 41d
Óskar hf.
Kársnesbraut 108
Bergplast
Smiðjuvegi 28d
Bílamarkaðurinn
Reykjanesbraut
Smiðjuvegi 46e
Bílamálunin Bliki
Smiðjuvegi 38e
B. Sigurðsson sf.
Nýbýlavegi 8
ALP bílaleigan
Hlaðbrekku 2
Búnaðarbanki íslands
Hamraborg 9
Borgarvirki, verktaki
Hjallabrekku 22
Verslunin 10-11
Engihjalla 8
Smurstöð ESSO
Stórahjalla 2
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
Hamraborg 1
Sjúkranuddstofa Silju
Hjallabrekku 2-E
19