Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1993, Qupperneq 20

Skinfaxi - 01.02.1993, Qupperneq 20
Knattspyrnudeild karla: Stefna á 1. deildina „Það eru um 200 krakkar sem sækja æfingar í fótbolta hjá okkur frá 2. flokki og niður úr. í yngstu flokkunum, 6. og 7. flokki, eru 40-50 krakkar. Fyrir þessa alyngstu erum við með tvær æfingar í viku yfir hávetur- inn, en frá og með 1. apríl eiga þjálfararnir okkar að vera með að lágmarki þrjár æfingar í viku,“ sagði Árni Guðmundsson formaður knattspyrnudeildar karla hjá Breiðabliki. Yngstu fótboltakapparnir hafa tekið þátt í árlegum pollamótum af lífi og sál. Þá gefst þeim og öðrum kostur á að sækja íþróttaskóla, sem hefur notið sívaxandi vinsælda. Hann var raunar kenndur við knatt- spyrnu þar til í fyrra. Þá var fyrir- komulaginu breytt og starfsemin nefnd knattspyrnu- og íþróttaskóli. Ein af breytingunum var að fá þjálfarana í kvennaknattspyrnunni til samstarfs. Með því móti var stefnt að því að fá fleiri stúlkur í skólann. Þetta skilaði þegar árangri, því aðsókn jókst til mikilla muna á síðasta ári. „Ég tel að foreldrastarf hjá Breiða- bliki hafi verið til mikillar fyrirmyndar í gegnum árin. Við erum með mjög stóra unglinganefnd og í henni starfa um 20 foreldrar. Þá hefur foreldrastarfið í deildinni verið afbragðsgott. Við höfum fest í sessi það fyrirkomulag að tryggja að þeir sem fari upp í gegnum yngri flokkana komist til útlanda einu sinni á þeim ferli. Þá fara þeir á einhver mót í nágrannalöndunum. Reyndar fór 4. flokkurinn síðast alla leið til Spánar og keppti þar á móti sem stóð í viku. Svona nokkuð sameinar foreldra og börn í starfi, því þau taka saman höndum varðandi fjáröflun fyrir slíkar ferðir." Knattspyrnudeildin hefur kappkost- að að taka vel á móti þeim sem koma nýir inn í starfið. Eru ýmsar samkomur haldnar, þar sem allir geta komið saman og skemmt sér. Nýjung í starfinu er svo byrjenda- flokkurinn, 8. flokkur, þar sem blandað er saman piltum og stúlkum. „Við viljum tryggja þessum krökk- 20 um einhverja þjálfun. Þau eru svo ung, allt niður í fjögurra ára, að þau eiga ekki samleið með sjö eða átta ára krökkum. Efdri flokkarnir „Gengi eldri flokkanna hefur verið nokkuð gott í gegnum árin. Við höfum þó helst verið að uppskera titla í 3. og 4. flokki. Við höfum verið þar í bar- áttunni um íslandsmeistaratitla mörg undangengin ár. í síðarnefnda flokknum vorum við íslandsmeistarar innanhúss þrisvar í röð, en við töpuðum því miður titlinum í ár. Undangengin fjögur ár höfum við alltaf unnið eina sex Islands- meistaratitla í karla- og kvennaknatt- spymunni.“ Árni sagði, að óneitanlega hefði vaknað sú spuming af hverju fólkið úr efri flokkunum skilaði sér svo illa sem raun bæri vitni upp í meistaraflokkinn. Þegar unglingar væru að fara úr 3. flokki og upp í 2. flokk, þá yrðu afföllin hvað mest. Þjálfarar teldu, margir hverjir, ekki eðlilegt að það skiluðu sér nema 2-3 úr hverjum flokki. „En það eru þó nokkuð margir flokkar hjá okkur, þar sem þessi tala hefur ekki einu sinni skilað sér. Við viljum reyna að fylgja þessum krökkum betur eftir með því að veita þeim þá þjálfun og þann stuðning sem þau þurfa. Við erum í samkeppni við aðrar íþróttagreinar og einnig er það á þessum aldri, sem krakkarnir hætta, því þau verða fyrir ýmsum truflunum á þessu viðkvæma skeiði, sem kyn- þroskaaldurinn er. Oft endar þetta með því að þau gefast hreinlega upp og hætta. Gegn þessu viljum við sporna.“ v Meistaraflokkur Breiðabliks fór niður um deild í fyrrahaust eftir þokka- legt gengi 1991. „Það má kannski segja að hugafarið hafi spilað þarna inn í. Hópurinn er ekki nógu samstilltur að mínu mati. Við teljum þó að vinnubrögðin hjá okkur séu á uppleið núna. Við settum stefnuna á að fara strax aftur upp í I. deild, hvort sem það tekst nú eða ekki.“ í 2. deild Meistaraflokkur Breiðabliks stefnir á 1. deildina á nýjan leik. A.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.