Skinfaxi - 01.02.1993, Side 21
Frjálsar íþróttir:
Foreldrarnir eru lykillinn
Frá síðasta haustmóti Breiðabliks ífrjálsum íþróttum.
Segja má að skipst hafi á skin og
skúrir í starfi frjálsíþróttadeildar
Breiðabliks. Hún var ákaflega
sterk fram undir 1980, en þá
dalaði starfið um nokkurt skeið.
Menn sáu að við svo búið mátti
ekki standa og því var hafist
handa við að hlúa að starfinu og
efla það á nýjan leik. Því er nú
skipt upp í tvennt, þannig að
aldursflokkarnir eru 14 ára og
yngri, og svo eldri iðkendur.
Egill Eiðsson hefur þjálfað eldri
flokkinn og Eyja Sigurjónsdóttir
hefur þjálfað þann yngri.
„Það hefur verið afskaplega
blómlegt starf hjá yngri flokknum,“
sagði Hreinn Jónasson formaður frjáls-
íþróttadeildarinnar. „Það hafa verið að
meðaltali um 30 krakkar á æfingum hjá
okkur. Þessi kjarni hefur æft hjá okkur á
þriðja ár og við væntum mikils af
honum þegar hann kemur upp í eldri
flokkinn. Þetta ætti að fara að skila sér
eftir 3-4 ár, ef vel er á spöðum haldið.“
I yngri flokknum er hlutfallið milli
kynja þannig að um 80 prósent eru
stúlkur. I eldri flokknum er svipað
hlutfall, nema hvað að þá eru það
karlarnir sem eru fleiri.
„Af eldri llokknum er það að segja,
að við misstum mjög öflugan liðsmann
núna um áramótin, Guðrúnu
Arnardóttur. En við fengum líka góða
íþróttamenn úr öðrum félögum, þannig
að ég er tiltölulega bjartsýnn. Við erum
að vísu ekki að horfa til sumarsins
núna, heldur leggjum allt okkar í að
byggja upp fyrir framtíðina."
Gengi frjálsíþróttafólksins í deild-
inni var ekki nógu gott á síðasta ári, en
menn telja sig sjá fram á mun betra
gengi í ár.
„I eldri flokknum erum við með
góðan kjarna fólks, sem er um tvítugt.
Þetta er geysilega skemmtilegur hópur,
15-20 manns á svipuðum aldri, mikill
stemningshópur. Við erum með 800 og
1500 metra hlaupara sem ég bind
miklar vonir við í dag. Þetta eru þeir
Isleifur Karlsson og Smári Guðjónsson.
Þá erum við með efnilegan þrístökkv-
ara, Gunnar Hreinsson. Hann er búinn
að æfa í tæpt ár og hefur náð frábærum
árangri. Síðan eigum við mikið efni í
hástökki, Jóhönnu Jensdóttur. Hún á
eftir að koma á óvart í sumar.“
Hreinn sagði að bæjaryfirvöld sýndu
starfinu mikinn skilning. Aðstaðan
hefði verið ákaflega léleg, þannig að
deildin hefði orðið útundan. En nú væru
fyrirséð ákveðin kaflaskipti. Verið væri
að undirbúa kastsvæði fyrir frjáls-
íþróttamenn, sem ætti að verða tilbúið
I. maí. Það myndi kosta um 7 milljónir,
sem þætti glæsilegt framlag. Þá hefði
verið gefið loforð um að aðstaðan á
vellinum sjálfum yrði lagfærð í sumar.
„Við ætlum að reyna að koma á
nýju móti í sumar, fyrir börn 14 ára og
yngri. Það mun bera nafnið „Búnaðar-
bankamótið.“ Það verður alfarið á
vegum frjálsíþróttadeildar Breiða-
bliks.“
Gamall keppandi
Hreinn er gamall keppandi frá þeim
árum sem frjálsíþróttadeildin var upp á
sitt besta. Þá voru flestir í landsliðinu
eða við það að komast í það. Síðasta
„vítamínssprautan" var þegar deildin
réð til sín rússneskan þjálfara. Þá var
rekið mjög öflugt unglingastarf. En
þegar sá rússneski hætti, fór að draga
verulega úr starfseminni.
„Okkur, þessum gömlu, var farið að
blöskra þetta ástand. Við ákváðum því
að gera eitthvað í málinu. Nú er mikið
starf unnið til að rétta þetta við og mér
sýnist að það sé þegar farið að bera
ávöxl.
Við erum nú að undirbúa enn frek-
ara átak. Við ætlum að gefa út frétta-
bréf, sem við reynum að tileinka yngri
börnunum að mestu leyti. Einnig ætlum
við að vera með veggspjald, sem við
fengum hjá FRÍ. Með þessu ætlum við
að reyna að fá fleiri krakka inn í starfið.
Það hefur oft verið vandamál í
frjálsum íþróttum, þegar nýr einstakl-
ingur kemur á æfingar, að hann er ekki
tekinn inn í hópinn. Við höfum lagt á
það áherslu, að taka vel á móti nýliðum
og sjá til þess að svona nokkuð hendi
ekki.
Við erum ekki eingöngu að reyna að
búa til afreksfólk, heldur að fá alla til að
vera með, ekki síst foreldrana.“
21