Skinfaxi - 01.02.1993, Qupperneq 22
Körfuboltinn:
Áherslan á yngri flokkana
„Árangur liðsins gæti verið betri ef
miðað er við getu þess,“ sagði Haukur
Hauksson formaður körfuknattleiks-
deildar Breiðabliks. Liðið komst upp í
úrvalsdeildina í fyrra, og hefur barist
fyrir veru sinni þar í vetur, en án
árangurs.
Körfuknattleiksdeildin var stofnuð
1968 og hefur starfað „með hæðum og
lægðum“ síðan. Fyrir um það bil þrem
árum tók hún svo mikinn kipp. Þá voru
iðkendur um 50 talsins en eru nú orðnir
um 300. Þennan fjörkipp þakka menn
ekki síst þjálfaranum, Sigurði Hjörleifs-
syni, sem sinnt hefur uppbyggingar-
starfinu af mikilli eljusemi.
„Hann er afar vinsæll meðal krakk-
anna og þá foreldranna um leið,“ sagði
Haukur. „Þá hefur körfuboltaumfjöll-
unin á Stöð 2, frá NBA-deildinni, haft
sitt að segja. Því er ekkert að leyna að
útlendingar hér á landi hafa gefið
körfunni vissa hæð, ef svo mætti segja.
Hún er mjög vinsæl í dag og það má
segja að það hafi orðið vakning. Við
eigum satt að segja orðið í erfiðleikum
með að fá tíma fyrir fleiri iðkendur í
Kópavogi."
Æfa á fjórum stöðum
Körfuknattleiksdeildin æfir á fjórum
stöðum, í Kársnesskóla, Snælandsskóla,
Kópavogsskóla og Digranesskóla. Er
þess sannast sagna beðið með nokkurri
eftirvæntingu að deildin fái aðstöðu í
nýja íþróttahúsinu sem fyrirhugað er að
reisa.
,,Sú geysimikla ásókn sem er í
körfuboltann er áreiðanlega varanleg, ef
miðað er við þróunina erlendis til dæm-
is,“ sagði Haukur. „Menn mega ekki
gleyma sér við meistaraflokkinn ein-
göngu. Uppbyggingarstarfið verður
alltaf að hafa forgang. Það er aðal-
atriðið. Við stefnum að því að hlúa að
þessu starfi og ná vaxandi árangri í
öllum flokkum. Með því ættum við að
koma upp góðum kjama fyrir meistara-
flokkinn í framtíðinni.
Yngstu llokkarnir em langfjölmenn-
astir, en krakkarnir byrja að æfa átta
ára. Breiðablik vann íslandsmeistaratitil
í 8. flokki stúlkna í fyrra og árangur í
piltaflokkunum hefur verið vaxandi.”
Erfið fjármögnun
Haukur sagði, að mjög erfitt væri að
fjármagna rekstur deildarinnar sem
stæði. I erfiðu efnahagsástandi héldu
fyrirtæki að sér höndunum varðandi
styrkveitingar.
„En við berjumst áfram með fjáröfl-
unum og höfum mætt góðum skilningi
víða. Reksturinn er m.a. fjármagnaður
með félagsgjöldum, en þess ber að geta
að séu fleiri iðkendur en einn úr hverri
fjölskyldu, þá fá þeir afslátt“
E R K I N G A R
ÁHRIFA MIKLAR
MERKINGAR !
Merkjum hverskyns sportfatnaði. Númeringar
Fyrirtœkja- og félagamerki.
Bola og húfuprentun
FATAMERKINGAR
SKEIFUNNI 3c - SÍMI: 68 00 20 FAX : 68 00 21
Leitið upplýsinga. Gerum tilboð. Sími 680020- Fax: 680021
GRAFÍSK HÖNNUN: MERKISMENN HF. AUGLÝSINGASTOFA