Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1993, Page 25

Skinfaxi - 01.02.1993, Page 25
Litli íþróttaskólinn Frá 1990 hefur íþróttamiðstöðin boðið upp á dvöl í Litla íþrótta- skólanum fyrir börn á aldrinum 10-12 ára. Starfsfólk miðstöðvarinnar sér um að útvega börnunum leiðbeinendur. Einnig er séð um alla dagskrá fyrir þau frá morgni til kvölds. „Þessi þáttur starfseminnar hefur heppnast afar vel,“sagði Hermundur. „Krakkarnir koma til okkar í miðri viku. Þau stunda nánast allar tegundir íþrótta. Kvöldvökur eru á hverju kvöldi og nóg að gera. Það er gaman að sjá hvernig mörg krakkanna breytast á einni viku. Sum þeirra eru mjög lítil í sér og ósjálfstæð, hafa stöðuga heimþrá og samlagast ekki hinum krökkunum. Við reynum að byggja þessa krakka upp og ég held að mér sé óhætt að segja að þau fari öll önnur og sjálfstæðari heim. Hitt er annað að aðsóknin hefur ekki verið nógu góð og við höfum getað bætt við krökkum á flest námskeiðanna. En hún fer vaxandi. Það sem við erum að stefna að núna, er að setja af stað eins konar skólabúðir Hermundur Sigmundsson forstöðumaður lþróttamiðstöðvarinnar á Laugarvatni. yfir vetrartímann. Við gætum þá starf- rækt þær frá hádegi á mánudegi til hádegis á föstudegi. Þarna gætu komið heilu bekkirnir, sem hefðu minni að- stöðu til að stunda íþróttir heima fyrir en flestir jafnaldrar þeirra. Við þyrftum að ná samkomulagi við íþróttakenn- araskólann um að fá að nota aðstöðu hans á daginn. Einnig mæti hugsa sér að þetta yrði hluti af æfingakennslu nemendanna í skólanum. Aðaláherslan yrði lögð á íþróttir og heilsu.“ Mest af suð-vestur horninu Langflestir hóparnir sem sækja Iþróttamiðstöðina heim koma af suð- vestur horninu. ,,Eg vildi sjá fleiri hópa frá ungmennafélögunum úti á landi,“ sagði Hermundur. ,,Það er upplagt fyrir keppnishópa, t.d. í frjálsum íþróttum, að verja saman viku á Laugarvatni. Þetta er að vísu aðeins að aukast og hópur frá USVH var hér t.d. um daginn, að undirbúa sig fyrir mót í frjálsum. Það eru rnikið til sömu félögin sem koma ár eftir ár, sem sýnir að fólki líður vel hérna. Og svo bætast alltaf nýir við, þannig að þróunin er í rétta átt. “ Verðlaunagripir verðlaunapeningar og félagsmerki. Verðlaunapeningar frá 280,- kr. íþróttagreinamerki fyrir allar greinar íþrótta. Áletrun. ^tmebaíil ÚR & SKARTGRIPIR • KRINGLUNNI Magnús E. Baldvinsson sf. 25

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.