Skinfaxi - 01.02.1993, Blaðsíða 31
Flúðir:
Nýtt íþróttahús tekiö í notkun
Nýja íþróttahúsið gjörbreytir aðstöðu unga fólksins til œfinga og keppni.
Nýtt og glæsilegt íþróttahús var
vígt aö Flúðum í Hrunamanna-
hreppi þann 17. janúar síðast-
liðinn. Hagur Ungmennafélags
Hrunamanna hefur því vænkast
til muna en fram að þessu hafa
allar innanhússíþróttir farið fram
í féiagsheimilinu.
„Þetta breytir ákaflega miklu fyrir
okkur. Við vorum í miklum vandræðum
vegna þrengsla í félagsheimilinu þar
sem íþróttakennsla grunnskólans fór
fram auk annarrar íþróttaiðkunar,"
sagði Loftur Þorsteinsson oddviti
Hrunamannahrepps.
„A sínum tíma þótti það mikið
framfaraskref að fá til umráða glæsi-
legan sal í félagsheimilinu þar sem
einnig væri unnt að koma íþróttum við.
Notkun hússins var orðin svo mikil að
það komust ekki nærri allir að sem
vildu. Skólinn hafði forgang á skóla-
tíma að sjálfsögðu en á seinni árum
notaði hann salinn alveg fram undir
kvöldmat. A þeim vikum sem liðið hafa
síðan nýja íþróttahúsið var tekið í
notkun sýnist mér nýtingin vera mjög
góð. Þegar skólanum sleppir eru nær
allir tímar bókaðir langt fram á kvöld
alla daga vikunnar. Ungmennafélag
Hrunamanna situr fyrir aðstöðunni þeg-
ar skólanum sleppir og þess skal getið
að það styrkti byggingarsjóð um eina
milljón króna þegar hafist var handa.
Félagið skipuleggur bróðurpartinn af
allri íþróttastarfsemi sem frarn fer hér í
sveitinni en í nýja húsinu er leikinn
körfubolti, handbolti, knattspyrna, blak
og iðkaðar frjálsar íþróttir, þolfimi og
þar fram eftir götunum."
Loftur sagði jafnframt að nýja húsið
bætti ekki síður úr brýnni þörf hvað
baðaðstöðu varðar. „í félagsheimilinu
var aðeins ein sturta í hvorum búnings-
klefa. Við gátum aftur á móti bætt úr
brýnni þörf með því að bjóða fólki að
nota aðstöðu þá sem fyrir er í sund-
lauginni sem er skamnrt undan. Það
besta hefði verið að byggja íþróttahúsið
við hana, en slíkt var ekki unnt af
ýmsum ástæðum.“
Möguleiki á stækkun
- Loftur var spurður hvers vegna
ekki hefði verið ráðist í byggingu
íþróttahúss að fullri stærð, með 20x40
metra sal.
„Menn voru sammála um að ekki
væri fjárhagslegt bolmagn lil að byggja
hús af fullri stærð ef ljúka skyldi
byggingunni á skikkanlegum tíma. Til
þess að skemma ekki möguleika á að
eignast þannig hús þegar fram liðu
stundir var ákveðið að byggja húsið í
fullri breidd og nota salinn þversum
fyrst í stað. Húsið er því byggt með
þeim fyrirvara að auðvelt verði að
stækka það þegar fram líða stundir.
Salarstærð er nú tæplega helmingur af
löglegum handboltavelli en annað rými
er miðað við húsið í endanlegri mynd.
Með undanþágu geta farið fram löglegir
leikir í körfuknattleik en sú grein er
einmitt mjög vinsæl hér um slóðir. Ég
er sannfærður unt að tekin hafi verið
rétt ákvörðun í þessum efnum og að
allir séu afskaplega ánægðir með
framtakið. Eitt er víst að við þurfum
ekki að óttast það að félagsheimilið
standi ónotað fremur en íþróttahúsið.
Þar fer fram mjög mikil starfsemi alla
daga. Þar hefur til dærnis leiklistardeild
ungmennafélagsins aðstöðu og hvers
konar félög og klúbbar halda þar fundi
og samkomur auk þess sem þar er eina
kvikmyndahúsið á gjörvöllu Suður-
landi. Þar fyrir utan notar hótelið hér á
Flúðum félagsheimilið í talsverðum
mæli undir veitingarekstur og er sá
þáttur alltaf að aukast.“
Fullbúið kostar húsið í þessari mynd
um 85 milljónir króna og þykir það
ágætlega sloppið. Þess bera að geta að í
húsinu hefur einnig verið innréttað rými
fyrir leikskóla staðarins.
31