Skinfaxi - 01.05.2000, Qupperneq 11
- Á veturna stundar Elma Lísa nám
viö Leiklistarskóla íslands og ef allt
gengur aö óskum útskrifast hún í vor.
En á sumrin einbeitir hún sér að
jafningjafræðslunni og því fróðlegt aö
vita hvaö þau eru aö fást við þessa
dagana?
„Við erum í raun að Ijúka
sumarstarfinu í næstu viku. Sumarið er
búið að vera einstaklega viðburðaríkt og
skemmtilegt. Við höfum verið að fræða
krakkana í Vinnuskóla Reykjavíkur um
skaðsemi vímuefna auk þess sem við
höfum selt jafningjafræðsluna út á land og
það hefur gengið mjög vel."
- Hvaö hafið þiö verið aö gera með
krökkunum í Vinnuskólanum?
„Þau hafa komið í heimsókn og eytt
heilum degi með leiðbeinendum okkar þar
sem þau hafa fengið fræðslu og verið í
hópefli. Þá fórum við t.d. með 9. bekkinn í
bíó en 10. bekkirnir fóru til Hveragerðis.
Einnig höfum við selt fræðsluna út á land
og þá sendum við leiðbeinendur okkar til
að fræða krakkana um skaðsemi
vímuefna."
- Er þetta fyrsta áriö sem þiö vinniö
meö krökkunum í Vinnuskóla Reykja-
víkur?
„Nei, þetta er fjórða sumarið sem við
fáum þau í heimsókn til okkar. Þetta hefur
gengið vel og krakkarnir eru flest mjög
áhugasöm og gera sér yfirleitt grein fyrir
skaðsemi vímuefna."
- Eru þau áhugasöm og góöir
hlustendur?
„Já, þau eru það en að sjálfsögðu eru
hóparnir sem við fáum misjafnir. Krakkana
hlakkar til að koma í heimsókn því við
pössum okkur á að hafa þetta skemmtilegt
1 bland við fræðsluna svo að við náum
betur til þeirra. Með þessu halda þau
einbeitingu út daginn og fylgjast vel með.
Einnig eru þau á launum daginn sem þau
dvelja hjá okkur og þeim finnst þetta
skemmtilegra heldur en að reyta arfa. Þau
eru því yfirleitt mjög jákvæð þegar þau
homa."
- Hvernig er venjulegur dagur hjá
ykkur?
„Við erum með fræðslu fyrir 8., 9. og
10. bekk og ef við tökum t.d. 9. bekkinn þá
mæta þau til okkar klukkan níu um
morguninn. Þar er tekið manntal og þeim
síðan skipt niður í hópa. Leiðbeinendurnir
byrja síðan á hópefli þar sem krakkarnir
fara í leiki og kynnast. Síðan erum við með
fræðslu til hádegis þar sem við segjum frá
skaðsemi vímuefna og út frá því reynum
við að fá þau til að ræða málin og segja
sínar skoðanir. Með þessu vonumst við til
að þau fari heim öðruvísi þenkjandi en þau
voru og að þau hafi myndað sér einhverjar
skoðanir og tekið afstöðu í þeim málefnum
sem rætt er um. Eftir hádegi förum við
síðan með þau í bíó þar sem þau fá
ákveðnar spurningar fyrirfram og síðan er
rætt um myndina að henni lokinni. Með
þessu Ijúkum við deginum."
- Eru þau opin og taka þátt í
umræðunni?
„Hóparnir eru að sjálfsögðu misjafnir
en það er mjög gaman að vinna með þeim
enda eru flestir hóparnir mjög
skemmtilegir og gefandi og taka þátt í
umræðunni. Þegar vel tekst til er
náttúrulega gaman að vita að maður sé
búin að láta gott af sér leiða og fá krakkana
til að hugsa."
- Þiö einbeitið ykkur aö 13 til 15 ára
gömlum krökkum. Er nauðsynlegt aö
byrja svona snemma meö forvarnir?
„Já, ég held að það mætti byrja fyrr.
Mesta forvörnin er í 9. bekk því að í 8. bekk
komum við til þeirra og kynnum fyrir
þeim Jafningjafræðsluna og fyrir hvað hún
stendur þannig að þau séu betur undirbúin
þegar við komum til þeirra að ári. Mér
finnst að það mætti vera meiri fræðsla strax
í 8. bekk um skaðsemi vímuefna enda ætla
ég að beita mér fyrir því á næsta ári."
- Hvenær byrja unglingar aö fikta
meö áfengi nú til dags?
„Það er allur gangur á því. Sumir byrja
seint að drekka á meðan aðrir byrja í 8.
bekk. Það er líka dálítið sérstakt að
stundum fáum við heilu bekkina þar sem
flestir eru búnir að prufa en svo eru aðrir
bekkir þar sem enginn hefur snert á
áfengi."
- Er hægt aö lesa eitthvað út úr
þessu?
„Já, það er hægt. Ef einhver er byrjaður
að drekka í vinahópnum þá er spennandi
fyrir hina að prófa líka og því fleiri sem
hafa prófað því líklegra er að hinir fylgi á
eftir. Félagsskapurinn og vinahópurinn
kemur því mikið við sögu í því hvenær
unglingar byrja að drekka. Við leggjum
mikið upp úr því að ræða um hópþrýsting
og fyrirmyndir við unglingana og að þau
taki afstöðu, þ.e.a.s. að þau geti sagt nei ef
þau hafa ekki áhuga þrátt fyrir að flestir
vinirnir séu farnir að prófa."
Það virðist ekki
vera vandamál
fyrir þau
(krakkana) að
útveg sér áfengi
eða hass.
- Er auövelt fyrir unglinga aö nálgast
áfengi nú til dags?
„Já, mér heyrist það á krökkunum. Það
virðist ekki vera vandamál fyrir þau að
útvega sér áfengi eða hass. Það eru þá
yfirleitt vinirnir sem þekkja einhvern sem
getur reddað hópnum eða þau stela áfengi
að heiman. Og samkvæmt þeim virðist
vera auðveldara að verða sér úti um hass
eða landa heldur en áfengi úr ríkinu."
- Er áfengiö oft forsmekkur þess sem
koma skal, þ.e.a.s. fylgja oft sterkari efni
á eftir?
„Já, tvímælalaust því um leið og búið er
að opna einar dyr þá opnast fleiri á eftir."