Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2000, Page 16

Skinfaxi - 01.05.2000, Page 16
náði aldrei skilaboðunum, hélt bara að það væri eitthvað að manninum. Þegar ítalinn var farinn, búinn að gefast upp á mér, sagði kærasti minn að hann hefði verið að bjóða mér hass. Ég varð hálfreið og það var eins gott að hann var farinn því ég hefði slegið hann utan undir ef ég hefði áttað mig á hvað hann var að fara. Hérna heima er fólk ekkert að auglýsa að það sé í dópinu en maður getur séð á því ef það er í einhverjum efnum." Sérðu fleiri dóphausa á skemmti- stööunum í dag en áöur? „Já, ég geri það og mér finnst þetta vera að aukast. Mér finnst þetta fólk mjög aumkunarvert. Það á virkilega bágt og ég vorkenni því. Þetta er alveg hræðileg þróun og svo virðist sem stöðugt fleiri falli inn í þennan vítahring. Það verður eitthvað að gera til að sporna við þessu en ég hef því miður engar lausnir. Það er mikið um forvarnir í gangi en það virðist vera erfitt að koma í veg fyrir þetta." Hollendingar hafa lögleitt notkun kannabisefna. Ungir sjálfstæöismenn vilja lögleiöa kannabisefni hér á landi og telja aö glæpum og vandamálum muni jafnvel fækka. Hvaö finnst þér um þetta? „Ég held að við losnum ekki við vandamálin með því að lögleiða kannabis. Þó að þau séu ekki eins hættuleg og sterku eiturlyfin amfetamín, e-taflan og heróín þá fylgja neyslu slíkra efna alls kyns vandamál. Það gæti virkað öfugt að lögleiða þau því það er miklu meiri hætta á því að þeir sem byrja að neyta kannabis leiðist út í frekari eiturlyfjaneyslu. f mínu námi lærði ég ýmislegt um kannabis og auðvelt er að finna rök gegn lögleiðingu þess. Kannabisefnin maríjúana, hass og hassolía hafa alls kyns óþægilegar aukaverkanir við neyslu eins og aukna ofbeldishneigð, hræðsluköst, fólk getur farið í geðveikiskennt ástand og geðklofi er sex sinnum algengari hjá þeim sem reykja kannabis að staðaldri en hjá þeim sem ekki reykja. Þetta finnst mér ekki mjög eftirsóknarvert og ekki þess virði fyrir skamma stund í vímu. Algengustu áhrif langvarandi kannabisneyslu eru persónuleikabreytingar, minnistap, kæruleysi og vinnufælni. Auk þess veldur kannabisneysla truflun á starfsemi kynkirtla, sérstaklega hjá karlmönnum. Börn mæðra sem reykja kannabis fæðast minni og léttari en önnur börn og eru líklegri til að fá hvítblæði. Nýminni bilar stórlega í kannabisvímu og það eru til margar sögur af fólki sem hefur reykt kannabis í langan tíma og er orðið svo minnisskert að það þarf að fara með minnismiða í hvert sinn sem það fer út úr húsi, bara hreinlega til að muna hvert það ætlar að fara og hvað það ætlar að gera. Þeir sem reykja kannabis mynda þol gegn flestum verkunum þess og þurfa því ávallt stærri og stærri skammta. Kannabis veldur einnig mörgum fráhvarfseinkennum, t.d. svefnleysi, óróa, klígju o.fl. Það sem er alveg sérstaklega athyglisvert er það að í kannabisreyk er u.þ.b. þrisvar sinnum meiri tjara en í tóbaksreyk. Heilsutjónið af kannabisreykingum er því töluvert meira en af reykingum. Eins og tóbaksreykingar geta kannabisreykingar valdið krabbameini, sérstaklega í lungum, öndunarvegi og munni. Líkaminn er mjög lengi að losa sig við kannabisefni og það er hægt að mæla þau í þvagi í allt að 6-8 vikur eftir neyslu efnanna. Ég held að þessi rök ættu að duga gegn lögleiðingu kannabis og ég held að það sé aðeins óskhyggja þeirra sem styðja lögleiðingu að glæpum muni fækka í kjölfarið." - En heldur þú ekki aö þaö veröi svipaö með kannabisefnin og bjórinn. Þetta veröur aö endingu leyft og öllum finnst fáránlegt að þetta skuli ekki hafa veriö leyft fyrr? „Nei, ég held ekki. Það er alltof mikil áhætta tekin með með því að leyfa þetta. Ahætta sem hefur í för með sér ákveðin vandamál sem erfitt verður að koma í veg fyrir þegar þau eru á annað borð komin." - Hvernig séröu ísland fyrir þér í framtíðinni? Náum viö aö stööva útvreiöslu ólöglegra vímuefna? „Nei, það verður aldrei hægt. Það veður alltaf til einhverjar leiðir fyrir þetta lið að nálgast efnin og flytja þau inn. En með forvörnum og meiri löggæslu verður vonandi hægt að minnka útbreiðslu ólöglegra vímuefna."

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.