Skinfaxi - 01.05.2000, Síða 32
- Æfir þú box?
„Samkvæmt landslögum má ekki æfa
box á Islandi en ég brýt þau nú samt
tvisvar í viku. Ég æfi þetta aleinn og set
upp boxhanskana en það er refsivert og
jafnast líklega á við það að vera með e-
töflur í fórum sínum."
- Þannig að þetta er hálfgerður
feluleikur hjá þér?
„Nei, þetta er enginn feluleikur hjá
mér og ég mun láta lögregluna taka mig
fastan ef út í það fer. Ef þeir spyrja mig
hvenær og hvar ég æfi þá mun ég segja
þeim það og þeir geta þá mætt og stungið
mér inn. Að mínu viti eru þetta fáranleg
lög enda eru leyfðar samskonar íþróttir
hér á landi þar sem þú mátt bæði sparka
og kýla. Þetta gerist ekki fáránlegra."
- Hefur þú boxað viö Bubba?
„Nei, við tókum bara sýndarhnefaleika
í einu áramótaskaupinu. Það var gaman
að því en við þurftum að passa okkur á að
koma ekki hreinum höggum hvor á
annan. Strangt til tekið frömdum við
lögbrot með þessu því það eru engin
undantekningarákvæði í lögunum."
- Ertu betri boxari en Bubbi?
„Við erum með mjög ólíkan stíl. Ég
nota fæturna til þess að vera hreyfanlegur
og kem inn höggum sem bíta ekki neitt en
Bubbi er með Mike Tyson stílinn, er
höggþungur. Hann tæki mig líklega í einni
lotu nema ég næði að dansa stanslaust í
kringum hann þannig að hann kæmi ekki
á mig höggum. En Bubbi er betri enda
stundaði hann box í Danmörku og hefur
því ákveðið forskot."
- Ef við förum út í dálítið aöra sálma
þá hefur þú starfað lengi sem
fréttamaöur og því fylgst vel með hvað
er að gerast í þjóöfélaginu. Hvernig
finnst þér ástand fíkniefnamála hér á
landi?
„Mér finnst ástandið í fíkniefnamálum
sýna mikinn tvískinnung og þar liggur
vandinn í baráttunni gegn vímuefnum.
Áfengi er leyft og það er í lagi að allir séu
fullir. Ég vil að menn taki betur á
vímuefnavandanum í heild. Það má ekki
taka eitt vímuefni út og segja að það sé allt
í lagi en banna síðan önnur. Þetta verður
að fylgjast að."
Bubbi er með Mike
Tyson stílinn.
Hann tæki mig
líklega í einni lotu
nema ég næði að
dansa stanslaust í
kringum hann
þannig að hann
kæmi ekki á mig
höggum
- Hvernig er hægt að leysa þetta?
„Ég vil að menn beini meiri orku að
eftirspurnarþættinum heldur en
framboðsþættinum. Þetta hafa þjóðirnar í
Suður-Ameríku bent Bandaríkjamönnum
á og vilja meina að þeir séu alltaf að
djöflast í Bólivíu og Kólumbíu til að koma
í veg fyrir að vímuefnin komist úr landi en
sjálfir öskri þeir á að fá þetta til sín. Suður-
Ameríkumenn vilja að þeir fari heim og
dragi úr eftirspurninni því þá hætti þeir að
framleiða. Það er mikið til í þessu og
svona ætti að vinna þetta hérna hjá okkur.
Það þarf að minnka eftirspurnina eftir
áfengi. Hérna þurfa allir að detta í það
vikulega, þetta er orðin eins og skylda um
hverja helgi. Þessu þarf að breyta og þá
mundi drykkjan minnka."
- En þetta er líklega erfitt í fram-
kvæmd?
„Ég geri mér fulla grein fyrir því. En
þetta er andlegt og ég vil að við kennum
skólabörnum, á aldrinum 13 til 14 ára,
námsgreinina áhættufræði. Þar yrði mælt
hvað það er mikil áhætta að stökkva út úr
flugvél með fallhlíf, að reykja og að byrja
að drekka áfengi. Síðan þyrftu allir að
stökkva út úr flugvél í lokin því það kæmi
í ljós að þar lægi minnsta áhættan. Þá
myndu unglingar líta eigin ábyrgð og þá
áhættu sem þeir taka allt öðrum augum en
núna. I dag segja unglingar að það sé allt í
lagi að byrja að drekka og reykja því
maður hætti bara þegar maður vill. En svo
kemur í ljós að það eru í kringum 15% sem
geta ekki hætt þegar þeir ætla sér það. En
í raun eru það miklu fleiri en 15% sem
drekka og reykja of mikið. Þetta kemur
bara ekki fram í skýrslum því mjög stór
hluti af áfengissjúklingum fer aldrei í
meðferð heldur."
- Og sjálfsagt vilja þeir ekki
viðurkenna að þeir eigi í erfiðleikum?
„Nei, þeir vilja aldrei og munu aldrei
viðurkenna það og skyldudjammið um
helgar sér fyrir því. Þeir geta auðveldlega
verið út úr heiminum 104 daga á ári enda
er það talið fullkomlega eðlilegt miðað við
hvernig skemmtanalífíð er í dag á Islandi.
Það er eðlilegt að vera fullur um hverja
helgi bæði föstu- og laugardaga."
- Heldurðu aö þetta hafi orðið svona
þegar bjórinn var leyföur?
„Við gátum ekki haldið áfram að vera
bjórlaus þjóð ein þjóða því við verðum að
fylgja þjóðarsamfélaginu og vera með
svipaðar reglur. Og fyrst við gerum það
geta menn ekki sagt í öðru orðinu að við
ætlum að vera með svipaðar reglur en í
næsta orði að við ætlum ekki að taka mark
á þeim og öllum þeim erlendu
rannsóknum sem sýna okkur að því
auðveldara sem er að ná í vímuefni því
meiri er neysla þeirra. Ég kaupi það ekki
að við vinsum úr það sem okkur hentar frá
öðrum löndum en ef það kemur illa við
okkur þá ýtum við því til hliðar."