Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.2000, Qupperneq 36

Skinfaxi - 01.05.2000, Qupperneq 36
- Sterar eru mjög hættulegt efni? „Já, sterar geta verið mjög hættulegir og þeir sem nota þá gera sér oft ekki grein fyrir því að hjarta-, lifrar- og lungnasjúkdómar eru oft fylgikvillar þessara efna. Og ekki má gleyma persónuleikabreytingum sem eiga sér stað bæði á meðan neysla er í gangi og einnig eftir að neyslu lýkur." - Geta menn oröiö ofrjóir? „Það eru margir fylgikvillar sem fylgja steranotkun og eru þeir mismunandi eftir því hversu mikil neysla hefur verið í gangi. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á steranotkun og sýna þær fram á margar stórhættulegar aukaverkanir. Ég tel að það sé nokkuð um það að ungt fólk sé að taka þetta og ég efast um að það geri sér grein fyrir hættunni. Þetta er auðvitað algengast í íþróttum þar sem oft er þörf á að byggja upp vöðvamagn og vöðvakraft á sem stystum tíma. " - En er hægt aö ná sama árangri án þess aö nota stera? ...en því miðup ep töluvept af þessu í gangi en þetta ep stóphættulegt og vipkap í paun eins og hvept annað eituplyf „Fólk er misjafnt að upplagi og það eru svo margir þættir sem þarf að huga að. Rétta leiðin er alltaf hollt og gott mataræði og að þjálfa markvisst. Genetískt upplag hefur mikið að segja og reglusamt líferni og ekki má gleyma hversu lengi fólk hefur æft undir réttri handleiðslu í sinni íþróttagrein, hver sem hún er. Ég hef séð venjulegt fólk breytast í einhver tröll á skömmum tíma og það segir manni ákveðna hluti. En það hvílir mikil leynd yfir notkun þessara efna og eins og ég sagði áðan hef ég aldrei kynnst þessu sjálfur, en því miður er töluvert af þessu í gangi en þetta er stórhættulegt og virkar í raun eins og hvert annað eiturlyf. Fólk á að hugsa um að þjálfa líkama sinn á heilbrigðan og eðlilegan hátt þar sem áhersla er lögð á að styrkja þol, efla styrk og borða skynsamlega."

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.