Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Síða 3
AS leiðarloku m
Þegar ég tók við starfi sem ritstjóri sjó-
mannablaðsins „Víkingur" gerði ég mér þær
vonir, að mér mætti auðnast að vinna þeim
málum gagn, sem ég hefi áhuga fyrir og tel
þjóðfélagslega nauðsyn að færa í betra og rétt-
ara horf en nú er: málum sjómannanna.
Ég vonaði að geta lagt sjómannastéttinni lið,
með því að aðstoða Farmanna- og fiskimanna-
samband íslands við það brautryðjandastarf,
er það hóf með útgáfu ,,Víkings“.
Því miður hafa aðstæður og atvik hagað því
svo, að vonir mínar hafa í þessu brugðizt, því
að frá og með þessu hefti „Víkings“, læt ég af
störfum sem ritstjóri hans.
Ég get ekki neitað því, að ég læt af þessu
starfi með nokkurri eftirsjá, því að ég hefi þá
sannfæringu, að „Víkingur" sem málgagn F.
F. S. í„ eigi eftir að verða eitt sterkasta vopnið
í baráttu sjómanna fyrir bættum kjörum
þeirra, en í þeirri baráttu hetöi ég viljað og
vil eiga þátt, eftir því, sem geta og ástæður
leyfa.
Þegar ég tók við „Víking“ hafði ég einnig
annað starf með höndum, starf, sem ég ekki
gat lagt á hilluna.
Mér varð það brátt ljóst, að þetta tvennt gat
ekki farið vel saman, þótt ég í fyrstu væri á
annarri skoðun.
Ég leit þannig á, að ég mundi gera öllum
aðilum óleik með því að vera við hvorugt
starfiS heill og óskiftur.
Ég afréð því að láta af ritstjórn „Víkings“,
og með þessum línum kveð ég „Víking“, les-
endur hans og samstarfsmenn mína við hann.
Um þá síðastnefndu vil ég aðeins segja
þetta:
Ég geri varla ráð fyrir, að ég eigi eftir að
hitta fyrir jafnstóran hóp manna, sem við
örðugar aðstæður vilja betur og vinna betur,
heldur en nær hver og einn þeirra, er ég hefi
haft kynni af í þessu starfi mínu.
Þeir, sem standa að F. F. S. 1. og „Víking“,
3
eru flestir starfandi sjómenn, en leggja þó
aukreitis á sig eril og áhyggjur kauplaust, en
þeir, sem kauplaust vinna aukastörf, eru ekki
margir í þessu landi bitlinganna.
Þessum ötulu áhugamönnum sjómannastétt-
arinnar sendi ég mínar beztu kveðjur, árnað-
aróskir, hvar sem þeir eru staddir og þökk
fyrir viðkynningu og samstarf.
Sjómannablaðinu „Víkingi“ óska ég iangra
lífdaga og giftudrjúgs árangurs í starfinu, til
heilla fyrir land og þjóð.
Reykjavík, í febrúar 1940.
Samkvæmt yfirlýsingu hr. Bárðar Jakobs-
sonar, lætur hann af ritstjórn sjómannablaðs-
ins „Víkingur" með þessu blaði.
Um leið viljum vér í stjórn F. F. S. í. og
ritnefnd blaðsins ekki láta hjá líða að votta
honum þakkir okkar fyrir starf það, er hann
hefir af hendi leyst við ritstjórn blaðsins.
Oss er það fyllilega ljóst, hvaða örðugleikum
það er bundið að yfirstíga alla þá byrjunarerf-
iðieika, er því fylgja að stofna slíkt blað. En
þar sem við erum vissir um, að sá grundvöllur,
er hann lagði að framtíð blaðsins, er traustur,
þökkum við honum fyrir starf hans og vonum
að verða aðnjótandi starfshæfni hans á þessu
sviði við áhugamál sjómanna, þótt hann nú,
samkvæmt eigin ósk láti af störfum sem rit-
stjóri þess.
Við óskum honum alls góðs gengis í fram-
tíðinni.
F. h. stjórnar F.F.S.l.
Þorst. Ámason.
F. h. ritnefndar
Þorv. Bjömsson.
VÍKINGUR