Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 6
mælisriti, sem félagið hefir gefið út nú fyrir síð- ustu áramót. Það er mál flestra, að aldrei fyrr hafi jafn margar og góðar bækur fyllt íslenzkan bóka- markað sem nú. Þeim hefir öllum verið sungið verðskuldað lof. En bezta bókin hefir legið í þagnargildi, og er þá átt við afmælisrit ihm- skipafélags íslands. Það er ekki einungis, að bók- in sé með afbrigðum falleg að öllum frágangi og óvenjulega ódýr, heldur á hún að geyma merki- lega sögu um lífsbaráttu þjóðarinnar, menning- arsögu, sem hefir að geyma fróðleiksbrunna þá, sem ekki einungis farmenn og sæfarendur vorir munu hafa yndi af að kafa, heldur og allir þeir, sem unna framfara og velferðarmálum þjóðar vorrar. Rit þetta er 304 bls. að stærð og er því skipu- lega skipt niður í 18 aðalkafla, sem hver hefir sinn sérstaka fróðieik að geyma, og um leið gerir bókina alla stórum aðgengilegri til aflestrar. —- Guðni Jónsson, mag. art. á hér miklar þakkir skilið fyrir, hve vel honum hefirtekiztumútgáfu ritsins, efnisskipun og frágang allan. Fyrsti kaflinn fjallar um siglingar í höndum útlendra skipafélaga. Er það fróðlegt sögulegt y^irlit um siglingar við landið allt frá því árið 1778, þegar fyrstu reglulegu póstafgreiðsluferð- irnar hófust á milli íslands og Kaupmannahafn- ar. Næsti kafli er um það, þegar fyrst var hafizt handa um félagsstofnunina, aðdraganda þess og allan undirbúning. Eru það upphaflega fimm- menningarnir þeir Thor Jensen, stórbóndi, Sveinn Björnsson sendiherra, Björn Kristjánsson kpm., Garðar Gíslason kpm. og Ludvig Kaaber banka- stj., sem vinna að málinu, en allir voru þair á einu máli um það, að ákjósanlegasti framkvæmdastjóri fyrir hið tilvonandi fé- lag væri Emil Níelsen, aðalskipstjóri hjá Thore- félaginu, sem þá hélt siglingum uppi við strendur landsins. Smátt og smátt bætast svo margir helztu dugnaðar- og atorkumenn bæjarins í hóp- inn og málið fær jafnframt byr undir báða vængi. Þeir Thor Jensen og Sveinn Björnsson semja fyrsta uppkastið að hlutaútboði, og mun hin mikla þekking hins fyrrnefnda að því, er að út- gerð skipa laut, vera grundvöllur hinnar fjár- hagslegu áætlunar um afkomu hins væntanlega Sveinn Bjömsson, sendiherra. Fyrsti formaður E. í. félags, og stóð hún með ágætum vel. Sú fram- sýni, sem gætir í þessu fyrsta hlutaútboði er eft- irtektarverð, þegar þess er gæL, að þar er gerc ráð fyrir kælirúmi í hinum fyrirhuguðu skipum, sem í þá daga var afar sjaldgæft. 1 þessum kafla gefur og að líta ávarp það, sem sent var til allra landsmanna, og hlutaútboðsbréfið. Þá getur í þessum kafla um fyrstu bráðabirgðastjórn fé- lagsins, og skipaði forsæti hennar Thor Jensen. Þriðji kaflinn er um fyrstu hlutafjársöfnun- ina, undirbúning hennar og árangur, ásamt yfir- liti yfir hlutaféð úr hinum ýmsu sýslum lands- ins. Einnig getur í þessum kafla um hlutafjár- söfnunina vestan hafs og þá menn, er þar beittu sér fyrir framgangi málsins. Næst eru tveir kaflar, annar um stofnfundinn og hinn um það, þegar félagið tekur til starfa með Sveini Björnssyni í formannssæti, Emil Níelsen sem framkvæmdarstjóra, ásamt 6 með- stjórnendum. Sjötti kaflinn er um smíði fyrstu skipanna og komu þeirra til landsins og nefnist hann „Heill og sæll úr hafi”. Er hann hinn skemmtilegasti, og er það ljóst tákn um fögnuð og hrifningu landsmanna við komu skipanna, er vér lítum yfir þennan kafla og sjáum allar þær árnaðaróskir í ljóðum, sem mættu þeim. Gullfoss, sem var VÍKINGUR 6

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.