Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Side 8
„GULLFOSS"
kemur til Vestmannaeyja,
í fyrsta sinn, 1915.
stríðinu stafa, og munu allir, sem unna hag og
velferð siglingamála vorra harma það.
Því næst koma kvæði og minni, sem skipunum
hafa borizt frá farþegum og unnendum þeirra,
sem vissulega eru fjölmargir.
Síðan koma samþykktir félagsins og loks
margs konar fróðlegar yfirlitsskýrslur, sem
glögglega tala máli þess starfs og afreka, sem
Eimskipafélag Islands hefir af höndum leyst.
Hér hefir aðeins verið í stórum dráttum stikl-
að á aðalefni þessa fróðlega og skemmtilega rits.
Rétt er að geta þess, að hinar fjölmörgu góðu
myndir úr þróun og starfi félagsins, sem í rit-
inu eru, prýða það bæði og gera það enn skemmti-
legra yfirferðar.
Það væri fjarstæða að ætla sér í stuttri grein
að geta alls þess, sem rétt væri að ryf ja upp og
minnast á í hinu skemmtilega afmælisriti Eim-
skipafélags íslands. Til þess þyrfti svo að segja
hver blaðsíða ritsins að fá sérstakt rúm. Hér
verður því að staldra við og stynga hendinni í
barm sinn.
Allt frá byrjun hafa beztu menn ráðizt í þjón-
ustu félagsins og veitt því forstöðu. Núverandi
formaður þess, Eggert Claessen, hæstaréttar-
málaflutningsmaður, og framkvæmdarstjóri þess
Guðmundur Yilhjálmsson hafa að allra dómi lagt
óeigingjarnt og blessunarríkt starf af mörkum,
félaginu til framgangs og eflingar.
Allir þeir, sem unna Eimskipafélaginu, munu
með þakklæti í huga minnast þeirra, sem fyrstir
bentu fram á veginn og ruddu ísinn. Þeir munu
minnast framkvæmdarstjóranna fyrir gott upp-
eldi á þessu óskabarni þjóðarinnar. Og þeir
munu minnast þeirra, sem stýra „Fossunum"
yfir hinn úfna sæ og á þann hátt ljá félaginu
lið sitt til frama og gengis. Þjóðin öll mun í
nútíð og framtíð standa fast um Eimskipafélag
Islands og Ijá því óskipt fylgi sitt. Þeir, sem
Eggert Claessen, formaður E. f.
VIKINGUR
8