Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Side 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Side 15
ljós yfir þetta svæði, og miklu sterkara en níi er. Veiðiskip eru líka oft á ferð einmitt á þess. um slóðum og kemur það illa að vitinn er ekki sterkari. Vitinn verður nú hækkaður verulega, og ljósmagnið aukið, 6—8-faldað. Sjónarlengd vitans verður þá 14 sm. Vitinn var byggður í Málmey 1936 og ’37, og var gert ráð fyrir að viti kæmi á Straum- nesið strax á eftir, en önnur verk, sem talin voru meira aðkallandi hafa verið látin ganga fyrir. Nú er meiningin að bæta úr þessu, enda má segja að Málmeyjarviti komi þá fyrst að fullum notum, þegar þessi viti er kominn líka. Sjónarlengd vitans verður sennilega um 12 sm. yfir Fljótavíkina og all-langt vestur fyrir Málmeyjarboða. Þegar um það er að ræða hvernig nota skuli vitaféð, þetta fé, sem veitt er til nýbygginga árlega, kemur auðvitað margt til álita. Enn eru svo fjölmargir staðir, víðsvegar kringum land, þar sem þörfin er mjög brýn fyrir nýja vita, og aðeins lítið eitt bægt að gera á hverju ári. í þetta sinn koma helzt til greina Þor- móðssker við Mýrar. Grenjanesið á Langanesi, vesturströnd Húnaflóa, kringum Ingólfsfiörð og víðar, og radioviti á Vestfjörðum, t. d. Gelt- inum eða Horni. Allt eru þetta staðir, sem ákaflega væri æskilegt að fá vita á, en ýms rök bnigu að því, að valið féll á þá staði, sem áður eru nefndir. Kamelíus og haiið Náttúran átti ekki mikið eftir af viti, þegar hann Kamelíus fæddist. Kamelíus var að vísu það, sem kallað er „normal“, og það á við marg- an annan. En í hátíðlegum skjölum, á hátíðlegu máli^sem koma frá hátíðlegum mönnumáhátíð. legum skrifstofum, var Kamelíus látinn hafa „lélega þroskaðar gáfur“, og ef satt skal segja, þá niun þessi setning hafa hæft Kamelíusi, sv< na daglega tekið. Faðir hans var fiskimaður og átti bát. Hann var fátækur, eins og flestir fiski- wenn. Og þar sem bátur er, þótt lítill sé, þarfnast fleiri handa en bara eigandans, þá var Kamelíus, sem fékk þroskaðri hendur en heila, ekki gamall, þegar hann var tekinn með í róðra. Hann Kamelíus fór að elska hafið. Raunar hvæsti það og ybbaði sig annað kastið. En það gat líka komið fyrir friðsamt fólk. Hafið gerði ekki grín að Kamelíusi og lék hann jafn grá- lega og mennirnir áttu til að gera. — Hafið greindi ekki á milli skynsamra og heimskra. Og sjóinn og ströndina og grynningarnar ná- lægt heimkynni sínu, þekkti hann Kamelíus eins vel og buxnavasana sína. Fiskiflotinn lá allur inni, því að stormar og brim höfðu geysað svo vikum skipti. Sjómenn- irnir gengu auðum höndum, eyrðarlausir og órólegir. Oft á dag varð þeim gengið á þá staði, sem bezt sást til himins og hafs. En Kamelíus hafði það öðru vísi. Hann settist niður á kamb- inn, þar sem froðan lék um fjörugrjótið. í klof- háum stígvélum og olíufötum, með sjóhatt, sat hann og studdi hönd undir kinn og starði. Hann horfði á brimskaflana rísa, hækka, nálgast og og brotna á skerjunum. Dagarnir liðu. Menn fóru að tala um „ elztu menn“ og í „manna minnum", þegar að talið barst að óveðrinu. En Kamelíus kærði sig ekkert um það, sem „elztu menn mundu“, hann sá bara hafið í öllum sín- um óteljandi myndum. En dag nokkum starði Kamelíus hvassara en hann átti vanda til. Yzt úti var eitthvað, sem 15 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.