Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 17
Skipstjóranum fannst þessi hafnsögumaður stýra skipinu einkennilega, borið saman við kortið, sem hann horfði á, og starði í land, sem hann miðaði við. Hann bjóst við að skipið tæki niðri á hverri stundu. Það bopsaði einu sinni í honum: „Hérna framundan er sýnd grynning með aðeins þriggja feta vatni“. „Hún hefir flutt sig“, svaraði Kamelíus. „Ég myndi hafa stefnt lengra inn“, sagði skipstjórinn. „Þá myndir þú hafa fundið grynninguna“, sagði Kamelíus þurrlega, „sandgrynningar liggja ekki kyrrar í brimróti“. Þá steinþagnaði skipstjórinn — hafnsögumað- urinn hlaut að vera óvenju dugandi og kunnug- ur staðháttum. Kamelíus sleppti ekki stýrinu fyrr en Briggin lá bundin inn við hafnargarð. Þá bað hann um kaffisopa. Skipstjórinn fór með hann niður og lét bera fram hverskyns kræsingar. „Farðu úr gallanum“, sagði hann, og Kamelí- us gerði það. Þegar skipstjórinn sá Kamelíus án sjóklæðanna, brá honum í brún. Þessi duglegi hafnsögumaður var bara stráklingur. „Hvað ertu gamall?“ spurði hann. „Ég er þrettán ára!“ kom svarið rólega. „Þrettán ára“, muldraði skipstjórinn, „hefði ég vitað það, þá myndi ég ekki hafa fengið þér skip og mannslíf í hendur af fúsum og frjálsum vilja“. „Nei, en þá hefði ströndin heima líklega verið þakin rekaldi og flökum nú í nótt, skipstjóri“, svaraði Kamelíus þurrlega. Hann stóð upp, þakkaði fyrir sig, fór í sjó- klæðin og gekk upp á þilfar. Þegar skipstjórinn kom, nokkrum mínútum síðar, var Kamelíus á bak og burt, en úti milli brotsjóanna hleypti lítill bátur suður eftir. ★ Nokkrum vikum síðar kom þykkt bréf til Kamelíusar. 1 því voru fimm þúsund krónur. — „Viðurkenning fyrir björgun skips og manns- lífa“, stóð innan í. Og seinna komu meiri pen- ingar, nóg fyrir nýjum þilfarsbát. Og allra síð- ast komu heiðursmedalíur, bæði úr gulli og silfri með skrautlegum stöfum. En Kamelíus kærði sig ekkert um þetta allt. Hann sat niðri í flæðarmálinu og rabbaði við sinn góða vin — hafið. Hann skildi það. Og það virtist sem hafið skildi hann, og væri honum hliðholt eins og góðum vin. Baldur Steingrimsson, skrásetningarstjóri. Baldur Steingrímsson þekkja flest allir sjómenn liéðan ur Reykjavík, og nágrenui. Hann hefir verið skrá?etning- arstjóri í 11 ár eða frá 2. jan. 1929, og hefir því tekiS upp nöfn allra þeirra sjómanna, er á skip hafa farið héð- an úr Reykjavík, og sumra oft á ári. Nýlega hefir Baldur 17 látið af starfi sem skrásetningarstjóri, og munu allir sjómenn sakna þess, því að hann var sérstaklega lipur og vinsæll í sínu starfi. — Oft hefi ég ónáðað Baldur með hinar og aðrar upplýsingra en alltaf fengið greið svör. enda er hann stálminnugur. — í>að lætur nrorri, að það sé um 100 skip, sem skrásett er á hdðan árlega, og reikni maður með 15 manna áhöfn að meðaltali, sem er sízt of mikið, þar sem á sum skipin er skrásett oft á ári, að þá hafi hann skráð um 16.000 sjómenn. Ekki alls fvrír löngu hitti ég Baldur að máli og spurði ég hann hvernig hann kvnni við verkaskiftin. „Mér þykir leitt að þurfa að skilia við siómennina", sa°’ði hann, ,,en revndar geri ég þnð nú ekki. þó að ég sé hættur að skrifa þá ur>p. því nð le'ð mín liggur oft niður á hafnarbakknnn og hitti ég þá oftast hóp af sió- mönnum, er ég þekki og mér þykir gaman að frétta af. Mér þætti vænt um, ef Víkingurinn vildi hera kveðiu mína til siómannanna, með þakklroti fyrir góða við- kvnningu". Ég vil einnig nota þetta tækifæri til þess að þakka Baldri í nnfni siðmannanna fyrir alla hans góðu og nákvæmu afgreiðslu, og þá ósk siómönnunum til handa, að eftirrennari hans verði „Baldur annar". G. H. O. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.