Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 18
ÁSMUNDUR SIGURÐSSON, stýrimaður á Reykjaborg: Ferð á togara með ísfisk til Hull og heitn afl Við lögðum af stað frá Reykjavík að kvöldi þess 5. janúar. Sæmilegt veður var, SA-strekk- ingur með hryðjum. Héldum við sem leið ligg- ur fyrir Reykjanes og var stefna tekin þaðan fyrir utan Vestmannaeyjar. Kl. 1 e. h. hinn 6. fórum við fram hjá Eyjum. Var sama veður- lag, suðaustan strekkingur og rigning. Þaðan var stefnan tekin í Pentlandsfjörð. Kl. 6 e. h. sama dag er skipið var statt ca. 50 sjóm. frá Vestmannaeyjum, var það lýst upp með ljós- kastara í ca. 5 mín. Við héldum áfram og urð- um ekki varir við nejtt annað alla þessa nótt, en kl. 11 f. h. næsta dag kemur stórt herskip í veg fyrir okkur og spyr okkur með siglinga- flöggum, hvaða skip þetta sé, hvert við séum að fara og hvaða vöru við værum með innan. borðs. Við svöruðum því eins og var. Sagði það okkur þá að halda áfram ferð okkar. Nú var komið gott veður, sunnan gola. Það skeði ekkert frá því venjulega það sem eftir var þessa dags, en rétt fyrir hádegi daginn eftir kemur herskip í veg fyrir okkur og spyr okkur að því sama og hið fyrra. Við gáfum sömu svör. Máttum við þá halda áfram. Um kvöldið vorum við farnir að nálgast Sule Skerry, sem er klettur um 40 sjóm. í NV frá Pentlandsfirði. Nú er ekkert ljós á vitanum þar og ekki heldur í Pentlandsfirði. Ekki er heldur hægt að fá miðun, því að allir miðun- arvitar eru dauðir. En ef Wick radio sendir skeyti, þá tekur maður stundum miðun af því um leið, en því er ekki treystandi til fulls,vegna þess, að þeir geta alltaf verið búnir að færa stöðina, til þess að villa fyrir óvinunum. Hér á þessum stað vorum við enn þá stöðvaðir og VÍKINGUR Asmundur Sigurðsson. spurðir að því sama og áður. Svöruðum við eins og var, og máttum því næst halda áfram. Nú fórum við að nálgast Pentlands- fjörð, en sáum ekkert land, því að það er komið kvöld, dimma og drungi í lofti. Kl. 3 f. h. næsta dag (þriðjudag) eigum við ekki eftir nema 7 míl. að Dunnet Hd., sem er höfði vestan megin við Pentlandsfjörð að norðan- verðu. Var þá stöðvað og látið reka. Kl. 7 f. h. var svo lagt af stað í sundið. Þaðan var stefnan tekin á Kinnard Hd. og vorum við þangað komnir ld. 1 e. h. Þaðan er óslitin tund- urduflalína, er Englendingar hafa lagt suður með ströndinni. Við höfðum fengið vitneskju um það heima, að sigla í 7 mílna fjarlægð við Rattray Head og Buchan Ness. Enska tundurduflasvæðið er nú um 12 mílur undan. Það er dimviðri svo að nú verður ein- 18

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.