Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Side 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Side 21
Halldór Jónsson, loftskeytamaður: oga mnn bjargar skipshöfninni af bý^ka skipinu ,,Bahia Bla nca“ SV-átt,5 til6 vindstig, með slydduéljum hef- ir staðið allan daginn. Skipið er bráðum full- hlaðið. Klukkan er um það bil að verða 22,30 og enginn ytri vottur ber nein merki þess, að hún nái ekki því marki eins og hvern annan dag, án þess að nokkuð sérstakt beri til tíð- inda. Það er nýbúið að kasta vörpunni, og ver- ið að koma á tog. En örfáum mínútum síðar er móttekin tiÞ kynning um það í gegnum loftskeytastöðina, að þýzkt skip sé að sökkva skammt fyrir norð- an þann stað, þar sem við erum staddir ásamt fleiri skipum. Slík tilkynning fer ávallt um skipið eins og elding. Skipstjóri fyrirskipar strax að draga aftur inn vörpuna. Öllum venj- um og reglum er eins og blásið í burt og hver einasti maður er sér þess meðvitandi, að af honum verður krafizt hins ítrasta, enda geng- ur nú allt með örhraða. Loftskeytin eru sett í noktun og sambandi náð við hið sökkandi skip. Það heitir ,,Bahia Blanca“, og hefir rekist á ísjaka. Hefir sent skeyti til Reykjavíkur og beðið um að senda dælubát til sín, því mikill leki sé kominn að skipinu. „Bahia Blanca“ segist taka því þakksamlega ef einn togari vilji koma og fylgjast með sér til öryggis, þar til björgunarskipið komi. Auð- heyrt er, að hinir þýzku sjófarendur eru ó- kunnugir allri íslenzkri tilhögun, sem eðlilegt er, og aðalatriðið hjá þeim virðist eingöngu vera að bjarga hinum dýra farmi, sem það er að flytja heim til föðurlandsins. Skipið hefir getað haldið áfram nokkurn tíma í áttina til lands, með mjög hægri ferð, en er nú alveg stanzað vegna sjóþyngsla. Það er afráðið að við förum til þeirra. Botnvarpan hefir verið tekin inn og lagt af stað með allri þeirri ferð, sem skipið á til. Sjór er úfinn og skipið stamp- ast, veltur og titrar, en því er engu sinnt, bara að komast áfram. Hásetar vinna að undirbún- ingi þess að björgun á skipshöfn hins sökkv- andi skips þurfi ekki að tefjast, ef til kemur. Á leiðinni höfum við stöðugt samband við skipið, miðanir eru teknar öðru hvoru, og stefn- um við rakleitt eftir þeim. Þegar skammt er orðið eftir til staðarins, sem skipið gaf upp, sendi það upp flugelda og sáum við þá skipið beint fram undan. Skömmu síðar, eða um kl. 03,30 vorum við komnir að því. Vindur var ekki eins hvass þar úti, eða SV 3 til 4 vindst., en haugasjór, rigning og dimmviðri. • Um það leyti fengum við skeyti frá þýz'ka Halldór Jónsson. 21 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.