Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Page 23
það, hvort þeir kæmust heim til Þýzkalands, til
þess að hefna hins skeða á Englendingum, eins
og einn þeirra orðaði það.
Um borð hjá okkur var nú orðið þröngt á
þingi, eða samtals 80 manns, en enginn lét
slíkt á sig fá, heldur reynt að gera sitt bezta
úr hlutunum. Nokkru eftir að lagt var af stað
byrjaði að hvessa, og komst vindur upp í 9
stig. Ferðin heim gekk þó prýðilega, nema
VERÐLAUNAKEPPNI
Þátturinn „A frívaktinni“ hefir í þessu blaði Yíkings-
ins flutt nokkur sýnishorn af ferskeytlum skálda vorra
og hagyrðinga, sem ortar hafa verið um sæ og sjóferðir.
Yíkingurinn hyggst að stofna til verðlaunakeppni meðal
sjómanna og kaupenda sinna um bezt gerðu hringhend-
una um hafið, skipiS eða líf sjómannsins, og mun svo í
framtíSinni birta beztu stökurnar, sem berast ásamt verð-
launavísunni — fyx'st og fremst — í kaflanum „A fiúvakt-
mni“. Verðlaunin verða hið fagi’a afmælisrit Eimskipa-
hvað nokkrir Þjóðverjanna urðu lítilsháttar
sjóveikir, af viðbrigðunum, að koma í svo lítið
skip, og skopuðust þeir mikið að því sín á milli,
sem ekkert fundu til.
Þegar til Hafnarfjarðar kom, var þar mætt-
ur þýzki ræðismaðurinn, til þess að taka á móti
skipsbrotsmönnunum, og þegar til Reykjavík-
ur kom fengu þeir hina beztu aðhlynningu.
félags íslands með skrautrituðu nafni þess, er hlutskarp-
astur vei’ður ásamt vei’Slaunavísunni.
Yíkinguinnn væntir þess, að hinir mörgu, sem skipa
flokk íslenzkra hagyrðinga í sjómannastétt vorri taki þátt
í þessari keppni og sendi blaðinu vísur sínar sem fyrst,
og ekki seinna en 1. apríl.
Hefir ritnefnd blaðsins ákveði'S að fá hina færustu
menn í íslenzkum fræðum til að fella dóm í keppni þess-
ari.
23
VÍKINGUR