Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Síða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Síða 24
GUÐMUNDUR H. ODDSSON: Sjómannadagurinn og slarfsem, íians Undanfarin 2 ár hafa sjómenn helgað sér einn dag á ári, Sjómannadagurinn, sem jafnan er 1. sunnudagurinn í júní ár hvert, til þess að kasta af sér hversdagshamnum-, minnast liðinna daga og á einn og annan hátt áð kynna þjóðinni störf sjómannsins. Að Sjómannadeg- inum hér standa 11 stéttarfélög sjómanna í Reykjavík og Hafnarfirði. í fyrra var Sjó- mannadagurinn einnnig haldinn hátíðlegur á Akransei, ísafirði, Siglufirði og Akureyri, og í Vestmannaeyjum hefir nú skipstjórafélagið og sjómannafélagið skipað undirbúningsnefnd fyrir næsta Sjómannadag. Starfssvið dagsins víðsvegar um land er með mjög líku móti. 1 reglugerð Sjómanna- dagsins hér, sem er í 11 greinum, segir meðal annars: 1. gr. Einn dagur á ári skal helgaður sjó- mannastétt landsins, er nefnist Sjómannadag- urinn. 2. Takmark Sjómannadagsins sé: a.) Að efla samhug meðal sjómanna og hinna ýmsu starfsgreina sjómannastéttarinnar. b.) Að heiðra minningu látinna sjómanna og þá sér- staklega þeirra, er í sjó drukkna. c.) Að kynna þjóðinni lífsbaráttu sjómanns?ns við störf sín á sjónum. d.) Að kynna þjóðinni hve þýðingar- mikfð starf stéttin vinnur í þágu þjóðfélags- ins. e.) Að beita sér fyrir menningarmálum varðandi sjómannastéttina, er auka gíldi hennar. 3. gr. Þessu takmarki sé náð með: ræðum, útvarpserindum, ritgerðum í blöðum og tíma- ritum, samkomum sýningum, íþróttum og Öðru því, sem stéttin getur vakið eftirtekt á sér með. Framkvæmdir Sjómannadagsins hér hafa verið æði miklar á ekki lengri tíma, og skal hér skýrt frá því helzta. Sumarið 1938 lét Sjómannadagurinn reisa í Fossvogskirkjugarði minnisvarða á leiði ó- þekkta sjómannsins. Er það viti úr steinsteipu, yfir 2y> meter á hæð. Vitinn stendur á steypt- um stalli, sem í eru lagðir þlágrýtissteinar, er tákna fjörugrjót. Einnig er steypt bylgjulögð umgjörð og á hún að tákna öldur hafsins. Á vitanum eru 2 málmskildir, sem á er letr- að: ,,Leiði óþekkta sjómannsins frá 1933”. „Reistur í tilefni af Sjómannadeginum 1938”. Ríkarður Jónsson myndhöggvari gerði líkan af minnisvarðanum af mjög mikilli snilld, að vanda. — 1 vitann var leitt rafmagn og logar á honum myrkranna á milli. — Eftir beiðni Sjómannadagsins hefir rafmagnið til vitans, verið veitt endurgjaldslaust. Það hefir komið til tals að beina ljóskasti vitans þannig, að það falli aðeins innan kirkjugarðsins, og er það margra álit að það fari betur á því. Á síðasta vetri efndi Sjómannadagurinn til samkeppi urn sjómannaljóð. Tvenn verðlaun voru veitt. 1. verðlaun kr. 150,00, 2. verðlauu kr. 50,00. Þátttakendur voru 47 og mun það eins dæmi. 1. verðlaun hlaut hið góðkunna skáld, Magnús Stefánsson. (Örn Arnar), fyrir kvæðið „,ls- lands Hrafnistumenn”, og 2. verðlaun, hlaut Jón Magnússon, skáld fyrir kvæðið, „Sjó- mannaljóð”. VÍKINGUR 24

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.