Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Blaðsíða 26
HALLGRÍMUR JÓNSSON, uélstjóri: Nútíma sjóorrusta Meðfylgjandi myndir sýna, hvernig sjóorr- usta er háð nú á tímum. En hún er af viður- eign þýzka orrustuskipsins „Admiral Graf von Spee“ og ensku herskipanna „Ajax“, „Achilles" og „Exeter“ út af ströndum Uruguay í Suður- Ameríku þ. 13. des. s. 1. Orrustan stóð í 16 klst. eða frá sólaruppkomu og til þess, er dimmt var af nóttu og S-pee flýði inn í hcfn í Montevideo. Hið þýzka, svokallaða vasaorustuskip, var tal- ið hið fullkomnasta af sinni gerð. Það var búið 27 cm. fallbyssum og gat skotið um 15 sjómílna vegalengd. Ilraðinn var um 26 sjómílur á vöku. Ensku skipin voru létt orustuskip eða „beiti- skip“ (cruiser). „Ajax“ og „Achilles“ með 15 cm. fallbyssum og 32 sjómílna hraða, og „Exeter“ sem er nokkuð þungbyggðari, með 20 cm. fall- byssur. Exeter hitti „Spee“ þrisvar sinnum, en var þá sjálfur orðinn svo laskaður, að hann varð að draga sig út úr orustunni. Var þá aðeins ein fall- byssa hans nothæf og á annað hundrað af skip- verjum særðir og fallnir. 1. „Ajax“ skerst í leikinn. VÍKINGUR ,,Ajax“ og „Achilles" héldu orrustunni á- fram, þar til Spee leitaði undan til hafnar í myrkrinu. Var hann þá mjöð af sér genginn. Stjórnturninn laskaður, önnur skipshliðin sundr skotin og sumra fallbyssur hans ónot- hæfar. 36 menn voru fallnir og um 60 særðir. Talið er, að „Spee” hefði átt að bera af óvin- unum vegna hinna stóru og langdrægu fall- byssna sinna. En hinir nutu þess, að þeir voru fleiri og hraðskreiðari. Þeir gátu valið sér högg- stað, ógnað með sprengjum og tundurduflum, hulið sig reykskýum til skiftis og með því kornið að „Spee” óvörum. „Admiral Graf von Spee“ átti síðan um tvennt að velja: Láta úr höfn að 4 dögum liðnum, eftir ófullkomna aðgerð, og mæta óvinunum er biðu hans fyrir utan landhelgina, eða vera kyrsettur á meðan strýðið stæði. Var hvorugur kosturinn góður. Hitt vekur þó hína mestu furðu, að þýska herstjórnin skyhli taka þá ákvövðun, sem raun varð á að láta sökkva þessu mikla og góða skipi, og með því undirstrika svo geipilega ósigur þess. 26

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.