Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Page 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Page 28
Jóhann Þ. Jósefsson, alþingisniaður Útilegan / Vestmannaeyjum 1869 Sæbrattar, svipmiklar og tígulegar rísa Vest- mannaeyjar úr hafi fyrir Rangársandi. Óvíða mun vera meiri náttúrufegurð, þegar gott er veður, eða veðurblíða jafn-dásamleg og stund- um er í Eyjum, þótt oft sé þar stormasamt. Þá er og fagurt að horfa til lands úr Eyjum, þeg- ar góð er fjallasýn; svo fagurt, að vart mun annað útsýni fegurra á landi hér. „Aldrei man ég á fósturfoldu fegurri sýnir við mér skína“, kvað séra Matthías, er hann minntist landsýn- arinnar af Helgafelli í Vestmannaeyjum. Úr landi er og fallegt að horfa út til Eyja, þegar gott er sýni. ,,Sem safírar greyptir í silfur- hring, um suðurátt hálfa ná Eyjarnar kring“, kvað Einar Benediktsson, er hann var sýslu- maður í Rangárvallasýslu. Vestmannaeyjar hafa líka löngum haftheill- andi áhrif á hugi sveitapiltanna í Rangárvalla- sýslu og nærsýslunum yfirleitt, og hefir mörg- um þótt fýsilégt að leita út þangað til fjár og frama. Til Eyjanna sóttu menn úr nærsýslun-i um, mannsaldur eftir mannsaldur, björg handa sér og sínum, stunduðu fiskveiðar frá Eyjum, ýmist á eigin skipum, eða þeir réðust í skip- rúm til Eyjamanna. — Þessar vertíðardvalir ,,landmanna“ (svo voru menn úr landi jafnan kallaðir), úti í Eyjum urðu einatt til þess, að þeir ílentust þar; oftast fyrst um sinn í vinnu- mennsku, en staðfestu síðan ráð sitt, urðu sjálfstæðir útvegsmenn og undu glaðir við sitt, meðan þeim entist aldur til. Þrekmestu og beztu starfskraftana lögðu nærsýslurnar, Skaftafells- og Rangárvallasýsla, lengst af Eyj- unum til. Árnessýsla líka að nokkru leyti, en VÍKINGUR J óhann Þ. J ósefsson. _þó einkum á hinum síðari áratugum. Það voru þróttmiklir og fjölhæfir menn, margir hverjir, þessir ,,landmenn“, sem sóttu ár eftir ár til sjóróðra í Eyjum. Jafnvígir á alla vinnu, bæði til sjávar og sveita, oft góðir bygginga- menn, og margir hverjir hinir beztu smiðir. Bjargmenn góðir eða fjallamenn, sem nefndir eru í Eyjum, voru ýmsir þeirra, er af landi komu, þó einkum Mýrdælingar og stöku Ey- fellingar. Þótt Vestmannaeyjar séu hinar fegurstu á að líta og gott sé þaðan að sækja til aflafanga, 28

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.