Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Síða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Síða 29
Utsýii yfir Vestmanna- eyjar. 'l'il vinstri á inynd- inni sést Eiðið, en til hægri sést út til Bjarn- areyjar, þar sem skipin láu. þegar veðurfar er gott, þá er því miður oft svo, og hefir löngum verið, að hamfarir náttúruafl- anna hafa gert þar skjót umskipti og á vet- fang.i skapað stórhættur hinum áræðnu sjó- mönnum, er stundað hafa atvinnu sína á þess- um slóðum. Þeir eru margir, hildaríeikimir, sem á undangegnum mannsöldrum hafa verið háðir af sjómönnum frá Vestmannaeyjum á hafinu kringum Eyjarnar. Barátta þeirra við brim og boða, við storma og stórviðri, hefir endurtekið sig áratug eftir áratug. Þær eru fæstar færðar í letur, sögurnar af baráttunni upp á líf og dauða, af hetjudáðum og frábærri hreysti þessara manna, eins og raunar sjó- manna vorra annarra víðs vegar við landsins strendur. Hér verður nú gerð tilraun til að skýra nokkuð frá einum stórviðburði í sjómannalífi Vestmannaeyinga, sem er eitt af mörgum átak- anlegum dæmum um þær þrautir, sem íslenzku sjómennirnir á opnu skipunum urðu stundum að reyna; en það er hin svokallaða útilega, sem átti sér stað árið 1869. Er hún sögð hér að mestu nákvæmlega eftir handriti Gísla heitins Lárussonar kaupfélags- stjóra og gullsmiðs frá Stakagerði í Vest- mannaeyjum, sem nú er látinn fyrir nokkru. En Gísli heitinn hafði sjálfur. verið formaður á opnu skipi um langt árabil í Vestmannaeyj- um. Þá er og stuðzt við aðrar sögusagnir, en þó einkum við það, er mér sagði Sigurður Vig- fússon (almennt kallaður Siggi Fúsason), er bjó að Fögruvöllum í Vestmannaeyjum, og einnig er fyrir nokkru látinn. í Sögum og sögn- um frá Vestmannaeyjum, sem Jóh. G. Ólafs- son cand. jur. hefir safnar, er útilegunni og lýst, en eftir öðrum heimildum. Sama er að segja um ritgerð um þennan atburð, er í fyrra birtist í Sd. blaði Alþýðubl. Heimildarmenn þeir, sem ég hefi skráð þetta eftir eða þó aðal- lega Sig. Vigfússon, telja einu skipi fleira í útilegunni en gert er af heimildarmönnum, er að áðurgreindum ritgerðum standa. Aðfaranótt hins 25. febrúar 1869 var í Vest- mannaeyjum ofsa austanveður. En undir morg- uninn lygndi, og um klukkan 9 árdegis var komið stillilogn. Brim var allmikið, eftir stór- viðrið, svo að „sagði til Leiðar“. (,,Leið“ var kölluð innsigling inn á innri höfnina á stuttu bili, og braut oft þvert yfir innsiglingu þessa í stórbrimum. Og þegar byrjaði að brjóta á ,,Leiðinni“, var komizt svo að orði, að „segði til Leiðar“). Loftsútlit var ótryggilegt og kafa- þykkni. Vertíðin mátti heita að vera í byrjun, og hafði lítið orðið vart við fisk. En þó fóru menn þennan dag að tygja sig til róðra, og munu flestir hafa róið um klukkan 11. En með því að útlit var ótryggt, fóru fæstir nema VÍKINGUE 29

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.