Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Blaðsíða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Blaðsíða 31
i Skipið „Gideon“. Áttæringur með 18 mamia áliöfn. ast austur yfir flóann í því óskapa veðri, er ú var skoilið. Voru skipin neydd til þess að iiafda sig öii á mjög iitium bietti auscan eyj- unnar, því að aftaka brim gjörði nú við eyj- una aiia, og ef nokkuð var frá vikjð, var aiif óviðráðaniegt, sökum ofviðris. Þarna uröu menn að láta fyrir berast alian dagmn og aiia næstu nótt. Var mjög erfitt, sérstakiega eítir að myrkrið skall á, að verjast árekstrum á skipin eða bjargið. Köii og fyrirskipanir heyrð- ust iila, því að veðurgnýrmn og brimöskrið yfirgnæfðu aiit annað. En þó tjáði ekki annað en gera það ítrasta er unnt var, til að verjast áðurgreindum hættum. Er það samhljóða ái,it þeirra, er í útilegunni voru, að þetta hefði ekki tekizt, og því enginn sloppið lifandi úr háskanum, ef ekk,i hefði viljað svo til, að tungl var í fyiimgu og bir-ta því sæmiieg. Við hörmungar ofviðrisins bættist og það, að undir kvöidið gerði mik,ið frost, sem harðn- aði þegar leið á nóttina. Sunnan á Bjarnarey gekk brimið svo hátt, að nam við svokaiiaðan Álkustaii, en hann ber, séður úr Heimaey, við hæsta nefið á Bjarnarey að sunnan. Sú saga er sögð, að skip eitt undan Eyjafjöllum lá syðst við eyna og allnærri berginu, og vissu skipverjar ekki fyrr en foss mikill steyptist yf,ir þá ofan af eyjunni með feikna afli, og komust þeir nauðulega undan, en skipið fyllti nærri af sjó. Þessi foss stafaði frá brimöldu, sem gekk sunnan í eyna og upp fyrir Álku- stall, svo að austur af flóði, og hafði þannig nærx-i grandað skipinu. Það má nærri geta, hvernig líðan manna hefir verið þessa nótt, þeirra er úti lágu. — Saman fór frostharka, veðurhæð og vosbúð, en um hressjng eða næringu var ekki að ræða, því að ekki mun þá hafa tíðkazt að hafa nesti með á sjó annað en drykkjarkútinn. Á skip- um slíkum, sem hér um ræðir, voru oft hálf- drættingar, en það voru unglingar, sem ekki þóttu fyllilega hlutgengir; og einnig voru há- setar sumpart gamlir menn, þó að aliflestir væru á bezta aldri. Er frá því sagt, að á skip- inu Enok hafi verið tveir hálfdrættingar, sem þoldu illa kuldann og vildu oft um nóttina leggjast fyrir. En formaðurinn, Lárus Árna- son, sem áður er nefndur, beitti við þá hörku í hvert sinn er þe,ir vildu hnipra sig, og rak þá til að fljúgast á, tii að halda á sér hita. Til merkis um hraustleika sumra hinna gömlu sjómanna má geta þess, að Árni Diðriksson, formaður á Gideon, fór ekki í skinnstakk sinn fyrr en komið var í hlé við Bjarnarey, og fór þá líka úr skinnbrókinni, til þess að hella úr henni sjó, og þannig tók hann á móti útilegu- nóttinni. Sjóhattinn hafði hann misst á austur- jeiðinni. Veðrið hélzt hið sama alla nóttina 31 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.