Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1940, Qupperneq 39
Frá félögunum Á fundi, er skipstjórafélagið Ægir hélt 5. des. 1938, með útgerðarmönnum og sjómönn- um á Siglufirði, voru eftirfarandi tillögur sam- þykktar í einu hljóði: 1. Sameiginlegur fundur sjómanna og útgerð- armanna haldinn að tilhlutun skipstjórafé- lagsins Ægir, Siglufirði, skorar á yfirstand- andi alþingi (þ. e. haustþingið 1939), að hlutast til um, að viðunandi uppbætur verði gefnar á bræðslusíldarverði síðastl. sum- ars, og þar með, að hluti hins óvænta gróða renni til þeirra aðila, sem bera áhættu og erfiði síldveiðanna. 2. Almennur fundur sjómanna og útgerðar- manna haldinn á Siglufirði 5. des 1939, skorar á yfirstandandi alþingi að breyta lögum Síldarverksmiðja ríkisins þannig, að í stjórn verksmiðjanna verði þrír menn þannig kosnir: Einn frá sjómönnum, þeim er skipta við verksmiðjurnar, annar frá útgerðarmönnum þeim, er skipta við verk- smiðjurnar og sá þriðji skipaður af ríkis- stjórninni. Fundarsamþykktir þessar voru síðan sendar alþingi, en þar lágu fyrir svipaðar samþykktir frá sömu aðilum víðsvegar að af landinu. En það virðist svo, sem flestum þingmönnum þjóð- arinnar hafi fundist kröfur þessar ekki þess verðar að hið háa alþingi Islendinga tæki þær til greina, fi-ekar öðrum kröfum stéttarinnar. Ætti íslenzka sjómannastéttin, að afstöðnu þessu síðasta alþingi, ekki lengur að vera í vafa um hið raunverulega hugarþel íslenska löggjafarvaldsins til hennar og hinna margum- töluðu fórna hennar í þágu þjóðfélagsins. Um það, hvort sjómönnum og útgerðar- mönnum beri að fá uppbætur á bræðslusíldar- verði frá síðastliðnu sumri eru máske skiftar skoðanir og margir sem líta svo á, að þar sem síldin var seld föstu verði, en ekki lögð upp til vinnslu, hafi síldarseljandinn engar frekari kröfur að gera. En því er til að svara: í fyrsta lagi er ekki við því að búast að síid sé lögð upp til vinnslu í Síldarverksmiðjur ríkisins meðan sjómenn og útgerðarmenn fá engu ráðið um val þeirra manna, er stjórna fyrirtækinu, og dylst engum manni hversu ó- eðlilegt þar er, að þeir aðilarnir sem bera uppi þetta stóra fyrirtæki skuli engu fá ráðið um stjórn þess og starfsemi. í öðru lagi: þegar bræðslusíldarverðið var ákveðið af stjórn verk- smiðjanna s.l. sumar, var það byggt á fyrir- fram sölu, er fram hafði farið á hluta af af- urðum verksmiðjanna, og svipuðu verðlagi á- fram. Þá þegar töldu sumir stjórnarmeðlimir verðið of lágt. En svo þegar stríðið braust út hækkuðu afurðir verksmiðjanna gífurlega í verði, og um leið raskaðist grundvöllur sá, er verðið var byggt á. Við stríðið myndaðist á ýmsan hátt alveg sérstakt ástand. Síldarútflutningur allur var stöðvaður í bili og fékkst ekki aftur nema gegn hækkuðu síldarverði og það þó um fyrirfram- sölu væri að ræða. Þær síldarverksmiðjur, sem höfðu selt alla framleiðslu sína fyrirfram, en ekki flutt út, fengu verðhækkun að miklum mun. En íslenzka sjómannastéttin, framleiðslu- stéttin sjálf, hún hefir enn ekki fengið verð- uppbætur þrátt fyrir kröfur sínar. Athugi maður nú aflaskýrslur síldveiðiskip- anna frá síðastliðnu sumri, sér maður fljótlega, að meirihluti alls síldveiðiflotans hefir ekki fiskað fyrir tryggingu. En það sýnir, að áhafn- ir þessara skipa fara frá borði að vertíð lokinni með svo að segja tvær hendur tómar, og út- VÍKINGUR 39

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.