Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1945, Blaðsíða 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1945, Blaðsíða 27
Minningarorð Hrunadans heimsveldanna í Evrópu er lokið. Flakandi í sárum er heimurinn eftir þann hild- arleik. Vér Islendingar höfum ekki verið beinir þátt- takendur styrjaldarinnar, en barizt þó. Sú orusta hefur verið háð drengilega. Hún hefur beinzt að ógnum og hamförum náttúru- aflanna, vinda og storma hafsins og þeim tor- færu leiðum, er sprengjur, tundurdufl og tund- urskeyti hafa varðað, — við að færa öðrum þjóðum björg í bú. íslendingar hafa því eng- um rétt ránshönd, en látið í þess stað koma margskonar liðveizlu, fyrirgreiðslu og hjálpfýsi. Slíkt sæmir sönnuni drengjum og óvopnaðri þjóð. Þótt svona sé málefnum háttað, hefur íslenzk sjómannastétt orðið að færa þungar fórnir á altari heimsviðburðanna. Mörg dýrmæt manns- líf hefur hún misst og þjóðin öll á bak að sjá mannvali, er fullkomlega er sambærilegt við manntap styrjaldarþjóðanna á sjálfum vígvöll- unum; bæði að hlutfallstölu og hetjudáð. Ástvinir harma í landi og stara af ströndu, meðan einhver vonartýra lifir um endurheimt, en ,,þola og stríða“ áfram, eftir að öll sund eru lokuð. ,,Blóð, sviti og tár“, eru því heldur ekki óþekkt fyrirbrigði á Islandi fremur en annars staðar á undanförnum árum. Misjafnlega hefur manntjón þetta komið nið- ur, þegar miðað er við héruð landsins og mann- fjölda. Úr einum hreppi á landinu, Þingeyrarhreppi í Vestur-Isafjarðarsýslu hafa þessir farizt: 1. Við árásina á ,,Fróða“, 11./3. 1941 4 menn. 2. „Hólmsteinsslysið", 30./5. 1941: 3 menn. 3. Er „Péturseyin“ fórst: 1 maður 4. „Hilmisslysið“, 26./11. 1943: 5 menn. 5. Er „Fjölnir" sökk, 9./4. 1945: 2 menn. Alls 15 menn. Hér eru ekki taldir aðrir en þeir, sem lögheim- ili áttu í hreppnum og nemur það hálfum þriðja hundraðshluta af öllum íbúum sveitarinnar. Samsvarar það því, að 100 þúsund manna her hefði misst hálft þriðja þúsund rnanns á víg- völlunum. I þessum hóp voru 2 feðgar, 2 mágar og fernir bræður. Allt vaskir menn og dugandi. Af þeim voru 4 fjölskyldumenn; hinir ókvæntir. Allra hefur þeirra verið vel og maklega VtKlNGVR minnzt, að þeim undanteknum, er fóruzt með „Fjölni“, 9. apríl þ. á., og verður þeirra hér að nokkru getið. MAGNÚS GESTUR JÓHANNESSON er fæddur á Ásgarðsnesi við Þingeyri, 25. júní 1922. Foreldrar hans eru Jóhannes Þ. Jónsson, steinsteypusmiður og kona hans Þorvaldína Magnús G Jóhannesson. Helgadóttir. Annan son sinn, Óskar Helga, misstu þau hjón í „Hólmsteins”-slysinu 30. maí 1941. Var hann þar vélamaður. Son og dóttur eiga þau eftir, af þeim er upp kamust. Magnús heitinn var matsveimr á „Fjölni'k — Að loknu barnaskólanámi gekk hann einn vetur á héraðsskólann að Núpi. Veturinn 1942—43 sótti hann hér vélanámskeið á Þingeyri og afl- aði sér vélstjóraréttinda. Stundaði hann svo jöfnum höndum sjómennsku og landvinnu, og var ötull og lagvirkur að hverju sem hann gekk. Natni hans og ástundun gerði hann færan um að reynast vel, þótt hann legði fyrir sig fjöl- þætt og ólík verk, og kunni til sjómennsku jafnt og almennra sveitastarfa. Hann var glaðlyndur, en þó viðkvæmur í lund. Fór sínu fram og hafði lítt orð á, þótt hann skipti skapi. Góður félagi og vinsæll. Saknað mest af þeim, er þekktu hann bezt. Hreinlundaður og tryggur. PÉTUR SIGURÐSSON er fæddur að Hvammi í Dýrafirði, 25. marz 1918. Foreldrar hans: Sigurður Jónsson, bóndi og vélstjóri í Lægsta-Hvammi og Margi-ét Arn- finnsdóttir kona hans. Sigurður, faðir Péturs, var 2. vélstjóri á línuveiðaranum „Pétursey“ og fórst á leið til Englands með því skipi í marz 1941. 223

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.