Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Síða 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Síða 3
Jón Eiríksson, skipstjóri: UU61E/Ð- Um nýmóðins siglingatæki, starfrækslu þeirra og meðferð i. Þess verður sennilega ekki langt að bíða, að þannig verði komizt að orði, að ,,í gamla daga“ hafi skipstjórnarmenn notað segulkompás og vegmæli til að finna leiðina yfir hafið, og svo notað sól, tungl og stjörnur með hjálp sextants og sjóúrs til að fá nákvæmari staðarákvarðanir þegar ekki sást til lands. Þó hef ég þá trú, að segulkompásinn og vegmælirinn haldi velli nokk- uð fram í tímann, í það minnsta sem varatæki, ef svo skyldi fara, að þau nýmóðins tæki, sem koma eiga í stað þeirra gömlu finndu upp á því, að bila einstöku sinnum. Með nýmóðins tækjum á ég við rafeindatæki svo sem Gee, Loran, Decca, Consol, miðunartæki (D/F), Rad- ar, Radio-stefnuvita. Auk þess Gyrokompása og bergmálsdýptarmæla. 'Sennilega er eittlivað fleira af þessu tægi, þó ég ekki minnist þess eða þekki sem stendur. Jú, ég minnist að hafa heyrt þess getið, að skipum og flugvélum hafi verið stjómað þráðlaust frá landi, og enginn maður í skipinu eða flugvélinni hafi þar hendi til tekið. Þessu þurfum við auðvitað ekki að hafa áhyggjur af aðrar en þær, að hafa „sekk- inn“ okkar í lagi! Sumt af þessum tækjum, sem nefnd eru hér að framan, geta að vísu tæplega kallast ný, svo sem miðunarstöðvar og bergmálsdýptar- mælar, sem flestir íslenzkir sjómenn munu nú um nokkurra ára skeið hafa kynnst og notað. Gyrokompás hefur verið notaður í skipum síð- ustu 20—30 árin, þó mér vitanlega hafi hann ekki verið í íslenzkum skipum fyrr en nú í hin- um nýja Goðafossi. Radar var fyrst notaður nú í síðasta stríði og er enn á þróunarstigi. Hin tækin, Gee, Loran, Decca og Consol voru einnig fyrst notuð nú í stríðinu og eru nú notuð af nokkrum skipum, er sigla á því svæði er þau ná yfir. Það má einnig segja um þau, að þau séu á tilrauna- og þróunarstigi. Þau hafa það öll sameiginlegt, að það þarf radiostöðvar eða stöðvakerfi (keðjur) í landi, og auk tækisins í skipinu þurfa sjókortin að vera yfirdregin með sérstöku línuneti (Lattice). Þessi tæki koma því ekki að notum nema innan takmarkaðra svæða, sem „keðjurnar“ ná til. Sagt er, að í stríðinu hafi Loran stöðvar náð yfir allt Norður- Atlantshafið og mikið af Kyrrahafinu. Lang- drægni Loran er talið 700 sjóm. að degi og 1400 sjóm. að nóttu. Við seinni tilraunir, sem gérðar hafa verið í Ameríku, hafa náðst góðar staðarákvarðanir í 1500 sjm. fjarl. að degi og 3000 sjm. fjarlægð að nóttu, og nákvæmni einn- ig meiri. Þegar skilyrði eru góð tekur það ekki nema 3—6 mín. að taka staðarákvörðun og setja hana út í kortið. Sem stendur er aðeins ein Decca „keðja“ starfrækt. Hún er á Suðaustur- Énglandi og nær yfir suðurhluta Norðursjávar, Érmasund og Irska hafið. 1 ráði er, að tvær aðrar „keðjur“ verði tilbúnar á þessu ári, önn- ur á Skotlandi, sem á að ná vestur á hafið fyrir vestan Skotland, norður að Hjaltlandi og yfir norðausturhluta Norðursjávar. Hin í Dan- mörku, og nær yfir austurhluta Norðursjávar, Skagerrak, Kattegat og suðvesturhluta Eystra- salts. Decca er ekki eins langdræg og Loran en mun öllu nákvæmari. Þar er reiknað með, að hægt sé að fá góða staðarákvörðun í 300 sjm. fjarl. að nóttu og allt að 1000 sjm. fjarl. að degi. Sagt er um nákvæmni Decca, að ekki skakki nema um 30 metra að degi til í 100 sjm. fjarl., og innan við V-> sjm. að nóttu til í 250 sjm. fjarl. Langdrægni Gee stöðva er talið 100 sjm. og nákvæmni frá 0,3 til 0,8% af fjarlægð- VÍICINQUR 121

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.