Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Page 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Page 6
vera til þess ætlaðir, að breyta nemandanum í slunginn rafeindafræðing, heldur munu þeir skýra á einfaldan hátt, hvað gerist í hinum ýmsu rásum tækisins, þegar það er í notkun, hvernig lofnetið starfar og hvaða lögmálum radiogeislun tækisins lýtur. Sjálf notkun allra þeirra radartækja, sem hafa komið á markað, er að heita má eins, og er næstum því jafn einföld og meðferð útvarps- tækis í heimahúsum. Jafn auðvelt er að læra að hafa not myndarinnar á umhverfisskífunni. En þrátt fyrir það mun radartækið aðeins njóta sín til fulls í höndum manns, sem þekkir á hverju það byggist og jafnframt takmörk þess. Ef þessa fræðslu vantar, getur reyndin orðið sú, að dálítil þekking sé verri en engin“. Ég hef lesið fleiri greinar í erlendum sigl- inga-tímaritum, sem fjalla um svipað efni og þar sem fram kemur sama skoðun, nefnilega sú, að það sé ekki nægilegt, að smíða góð og dýr tæki. og setja þau í skip, ef ekki er tryggt um leið, að meðferð og notkun þeirra um borð í skipunum sé rétt. Aðeins með því móti geta þau komið að fullu gagni. Að mínum dómi er sú trygging fyrst og fremst fólgin í þessu tvennu, sem bent er á hér að framan. Að þeir, sem með tækin fara um borð í skipunum hafi það mikla þekkingu á þeim, að það gefi vissu fyrir réttri notkun þeirra, og, að stöðugt eftir- lit sé haft með þeim af sérfróðum mönnum í landi, þegar því verður við komið. Hvernig erum nú við, bæði ungir og gamlir, íslenzkir skipstjórnarmenn undir það búnir, að notfæra okkur þessi tæki? Ætli það sé ekki al- veg óhætt að svara þeirri spurningu þannig, að þekkingin í þessum efnum sé af skornum skammti hjá öllum þorra okkar. Ég gæti bezt trúað, að ekki væru svo vandfundnir þeir menn á meðal vor, sem nú um nokkur ár hafa haft bæði bergmálsdýptarmæli og miðunarstöð í skip- um sínum, en ættu þó erfitt með að útskýra nákvæmlega hvernigþessi tæki vinna, eða skilja að fullu hvaða orsakir liggja til þess, að þau starfa ekki rétt, þegar það kemur fyrir. Ef einhverjum starfsbræðrum mínum finnst hér höggvið full nærri virðingu sinni, þá get ég huggað þá með því, að ég er sjálfur í þessum hóp! Með þessi tvö tæki höfum við að mestu treyst á loftskeytamennina með daglegt viðhald, og ef um smábilanir hefur verið að ræða. Það mun jafnvel vera nokkuð algengt, að þegar taka skal þráðlausa miðun er lofskeytamaður- inn kallaður til að gera það. Að nokkru leyti kemur það til af því, að hann þarf hvort eð er að fá að vita þegar miðað er, til að stilla loft- netin rétt í stöðinni hjá sér. Nýrri tæki munu þó þannig útbúin, að það er hægt að stilla loft- netin uppi í stjórnklefanum, og merki um, að það hafi verið gert, kemur þá fram í loftskeyta- stöðinni, svo loftskeytamaðurinn getur séð, að verið er að miða. Þegar þannig er um hnútana búið er engin afsökun fyrir skipstjórnarmann- inn, að miða ekki sjálfur. Það er hans verk. Á hinn bóginn þykir mér líklegt, að það verði loftskeytamaðurinn, sem framvegis kemur til með að hafa daglegt eftirlit með þessum tækj- um þegar skipið er í ferðum og þegar ekki næst til annarra sérfróðra manna. Fyrir alla, sem hér eiga hlut að máli, bæði þá, sem tækin nota, og ekki síður eigendur þeirra, mun það þó efa- laust vera til mikils hagnaðar, að sérfróðir menn hafi sem oftast eftirlit með þeim. Jón Eiríksson. Hvað verður síldarverðið í sumar? Undirbúningur mun nú almennt hafinn hjá skipum þeim, er ætla sér að stunda síldveiðar í sumar. Útvegsmenn hafa uniiið kappsamlega að því að tryggja sér síldarnætur og nótabáta, og að því að standsetja skip sín áður en veiðin hefst. Þeir hafa kríað sér út lán hjá einstakling- um og lánsstofnunum, og eru nú reiðubúnir að leggja á nýjan leik út í óvissuna um þá gylltu. Ætla mætti, að nóg sé að vera í óvissu um það, hvort nokkuð aflast eða ekki, og að sjó- menn þyrftu ekki að yera í óvissu um hvað síldarverðið á að vera í sumar. En það er nú samt svo, að sjómenn hafa enga hugmynd um verðið ennþá. Hvað á slík leynd að þýða? Er ekki hægt að upplýáa síldarverðið fyrr en síldveiðarnar eru hafnar? Búið er að gera verzlunarsamninga um sölu á síldarafurðum þessa árs. Sjómenn krefjast þess, að fá að vita verðið á síldarmálinu og síldartunnunni, áður en þeir hefja veiðarnar. Sjómaóur. 124 V f K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.