Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Side 9
Úr vinnusal frystihússins. Fiskurinn paklcaður.
mál, að alltof lítið hefur verið unnið. Menn
skyldu að óreyndu ætla, að þessar góðu og full-
komnu vélar, eign íslenzka ríkisins, væru ekki
látnar standa mánuðum saman ónotaðar, á sama
tíma og fyrsta flokks hráefni er mokað upp úr
sjónum. En því miður hefur sú orðið reyndin.
Hægt hefði verið að hefja framleiðslu niður-
soðinnar síldar í stórum stíl í haust sem leið,
ef eigi hefði staðið á rekstrarláni. Þótt allar
leiðir væru reyndar, tókst mér ekki að afla
rekstrarfjár til niðursuðunnar. Hér var þó ætl-
unin, að kanna í fyrsta sinn að nokkru ráði,
hvort á íslandi væru fyrir hendi skilyrði til
stórframleiðslu á niðursuðu síldarafurða. Um
verulega áhættu var alls ekki að ræða, því ó-
hugsandi var, að meira tap yrði á framleiðsl-
unni en hinu, að sitja með verksmiðjuna auða
og gera ekki neitt. Þegar ég sá, að ekkert veru-
legt yrði úr síldarniðursuðu að sinni, fór ég
að athuga möguleika á niðursuðu fiskþunnilda,
bæði héðan úr hraðfrystihúsinu og úr öðrum
frystihúsum. Að undanförnu hafa verið soðin
niður þunnildi fyrir að útflutningsverðmæti
um 1 millj. kr. Er það aðeins brot af því, sem
verksmiðjan gæti afkastað við fullkomnari skil-
yrði og jafnari öflun hráefnis. Hefur yfirleitt
ekki verið soðið niður í meira en 12 þúsund
dósir á dag.
— Hvað segið þér um markaðsmöguleika?
— Um markaðinn er það að segja, að eftir-
spurn eftir niðursoðnum fiskafurðum er tölu-
vert mikil. Framleiðsla okkar þykir góð, en held-
ur dýr. Þó má raunar segja, að eigi skorti nema
herzlumuninn til þess að við séum fyllilega sam-
keppnisfærir um verð á heimsmarkaðinum.
Tvær dálitlar pantanir hafa þegar verið af-
greiddar til Palestínu, og þessa dagana er ver-
ið að ganga endanlega frá sölu til Frakklands.
Ennfremur er von á allstórri pöntun frá Tjekkó-
Slóvakíu. Er hér um gott verð að ræða, sem
við megum vel við una. Bretar, sem gjarnan
vilja kaupa af okkur mikið af niðursuðuvörum,
hafa hins vegar ekki fengizt til að bjóða nema
53 shillinga fyrir kassann með 48 dósum. Það
er heldur lágt verð fyrir okkur, en munar þó
litlu.
V í K I N □ U R
127