Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Side 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Side 13
VeptunuÁ SETUR GLÆSILEGT AFLAMET Togarinn Neptunus (sjá mynd á kápusíðu) hefur nýlega sett glæsilegt afla- og sölumet. Hann seldi afla sinn í Englandi hinn 7. maí s. 1. Reyndist aflinn 5709 kit, er seldust fyrir 19069 sterlingspund. Áður en skipið sigldi með afla sinn, seldi það fisk í Reykjavík fyrir 14 þúsund krónur. Er þetta mesti afli, sem togari hefur nokkru sinni lagt á land í Englandi, enda hefur verið getið um þetta aflamet í mörgum brezkum blöðum og víðar um heim. Togarinn Neptunus er smíðaður á s. í. ári í skipasmíðastöð John Lewis & Sön í Aberdeen. Var smíði hans lokið í desembermánuði. Er þetta fyrsti togarinn, sem samið var um stækk- un á, frá hinni almennu gerð nýsköpunartogara. Skipið er 717 smálestir brúttó. Neptunusi hefur gengið frábærilega vel síðan hann hóf veiðar nú um áramótin. Um miðjan maí hafði skipið lokið fimmtu aflaför sinni, með þeim glæsilega árangri, sem að framan getur. í þessum fimm veiðiferðum hefur skipið selt fyrir tæp 75 þúsund sterlingspund. Meðal- sala er því um 15 þúsund sterlingspund í hverri söluferð. Skipstjóri á Neptunusi er hinn kunni afla- maður, Bjarni Ingimarsson frá Hnífsdal, áður skipstjóri á Júpiter. Eigandi skipsins er h.f. Júpiter í Reykjavík, framkvæmdastjóri Tryggvi Ófeigsson útgerðai-maður. Neptunus við bryggju í Reykjavik, er hann kom með hinn mikla afla. VÍKINGUR 131

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.