Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Síða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1948, Síða 16
Hér fara á eftir nokkrar smellnar og vel kveðnar lausavísur eftir Vestur-íslendinginn Guttorm J. Gutt- ormsson, teknar úr hinu nýútkomna kvæðasafni hans. Guttormur er manna fyndnastur, eins og fram kemur í eftirfarandi vísum. ★ IJr heimi vísindanna. Frá skoðun, sem er rökstudd, ég reyndar aldrei vík, að ráða megi því, hverjum börnin verði lík: Ef kona, sem er vanfær, mig vel til fara sér, þá verður hún svo hrifin, að barnið líkist mér. ★ Bindindi. Þú leyndir þinni skoðun á landsmálum og trú og lézt ei getið sannfæringar þinnar. í bindindi var enginn eins þolgóður og þú með þagnartappa í flösku hreinskilninnar. ★ Gáfnamerki. Gáfnamerki gott: að þegja, glotta að því, sem aðrir segja, hafa spekingssvip á sér, aldrei viðtals virða neina, virðast hugsa margt, en leyna því, sem reyndar ekkert er. ★ Hvltir Eskimóar. Eins og mörgum er kunnugt, ritaði Vilhjálmur Stef- ánsson mikið um það, eftir dvöl sína hjá Eskimóum, að hann hefði séð þar fólk með hvítan hörundslit, e. t. v. afkomendur hinna fornu íslendinga. Guttormur kvað: Eftir Vilhjálms utanför til Eskimóa hvítu fólki fór að snjóa. ★ Vandræði. Miklum vanda er ég í — orðinn fjandi mæðinn — get ei andað út af því að í mér standa kvæðin. ★ Pegasus. Stundum bregður Guttormur fyrir sig gamansemi í Heine-stíl, til dæmis í þessum stökum: Mér þótti ég heyra af hæðum hinn hljóðlega vængjaþyt, sem ómar af óortum kvæðum við einyrkjans daglega strit. Ég leit upp í loftbláinn víða, sem ljómar í draumi bezt, og sá on úr sólhvolfi líða hinn söngglaða, vængjaða hest. Það líktist ei dimmum draumi. Nei, draumurinn sá var ljós, að Pegasus tók ég í taumi og teymdi hann — inn í fjós. Á FRÍV/ Eitt er nauðsynlegt. Að hafa vit, sem enginn getur etið, er ekki að furða þó sé lítils metið, því mest um vert er hitt á heimsins braut að hafa burði til að vera naut. ★ Úr afturhvarfsprédikun. Einn vantrúar þræll fyrir þverúð sneyptist: Af þilfari ofan um gat hann steyptist og nefndi þá fjandann á nafn eins og gerist. kom niður á ullarpoka og — snerist. ★ Missmiði. Að reyndi guð að gera úr honum mann, það getur ekki dulizt þeim, sem skoða’ hann. Af leirnum hefur lagt til nóg í hann, en líklega ekki gengið vel að hnoða’ hann. ★ Ástarvísa. Ort undir annars nafni, fyrir borgun. Til þín ennþá, elskan mín augum renni ég glaður. Upp ég brenn af ást til þín. Ég er kvennamaður. ★ „Hvað ungur nemur sér gamall temur". Það, sem ungum lærist, í elli verður tamt, orðshátt þann ég vel, því sannan tel hann. Þeir, sem voru á brjósti, að hrundun hyllast jafnt. Hinir eru gefnir fyrir pelann. ★ Trú sigur hins gðða. Komir þú í hús, þar sem kaffi er ekki á borðum, kunnirðu ekki vel við að biðja um það með orðum, stattu þá hjá frúnni um stund án þess að tala, strjúktu á henni bakið, og þá fer hún að mala. ★ Til ritdómara. Ef þú hyggst að hýða nóg, hýddu þér til muna. En þú hýðir aldrei þó úr mér náttúruna. ★ Guttormur yrkir oft ágætar vísur um veðurfarið og náttúruna. Einkum lætur honum vel að lýsa hamförum náttúrunnar, öllu -því, sem hrikalegt er og stórt í sniðum. Hér koma nokkrar stökur af því tagi. 134 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.