Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1952, Blaðsíða 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1952, Blaðsíða 2
Vilhjálmur Jón Sveinsson: Skipsskaðar á Skagafirði Fyrir nokkrum árum (1946-1947) birtust hér í blaðinu nokkrar greinar eftir Vilhjálm Jón Sveinsson um sjósókn Skagfirðinga á áraskipa- tímunum. Grein sú, sem hér fer á eftir, er eins konar framhald þeirra frásagna. — Ritstj. í eftirfarandi línum mun ég segja frá nokkr- um skipssköðum, sem urðu frá Skagafirði á áraskipatímunum. Þegar Gísli Andrésson, bróðir Einars skálds Andréssonar, bjó á Reykjum á Reykjaströnd, stundaði hann sjóróðra af kappi vor og haust. Haustið 1858 réði hann fyrir háseta hjá sér tvo Húnvetninga. Var annar þeirra Björn Guðmundsson frá Kúfustöðum, þrekmenni hið mesta, tvígildur á ár og sundmaður góður. Hinn hásetinn hét Jón Guðmundsson, vel á sig kom- inn og sjómaður góður, en það kom í ljós, að hann var einráður og framgjarn hvað tillögur snerti um sjósóknina. Þegar Jón var að flytja sig í verið, eins og kallað var, hóf hann máls á því við fylgdarmann sinn: „Bleik er lestin“. Þegar þeir komu út á svokallaða Brekku (milli Ingveldarstaða og Reykja), benti Jón norður á Sandvíkina, norður af Reykja-Diskinum, og sagði: „Þarna verður nú gröfin mín í haust“. Góður afli var framan af vertíðinni, en frem- ur ógæftasamt. Kom svo að því, þegar leið á vertíðina, að fiskilaust varð inni í firðinum. Þegar fiskilaust varð inni í firðinum, fengu menn uppsátur á Reykjum til þess að geta sótt norður eftir. Þá komu tvær skipshafnir innan af Reykjaströndinni, og var formaður á öðru skipinu Árni Jónsson frá Innstalandi, aldavin- ur Gísla Andréssonar. Þegar skipshafnir þessar voru búnar að búa svo um sig, að þær gátu róið daginn eftir, ef veður leyfði, þá hafði borið á því, að Jón var eitthvað órórri en hann var vanur, — einhver samkeppnisóró hefur þving- að hann. Menn fóru svo að hátta að kvöldi eftir venju. Jón fór ekki úr fötum. Þegar Gísli kom á fætur nokkru fyrir dag, að gá til veðurs, var Jón bú- inn að beita mestalla lóðina; var svo lokið við að beita það, sem eftir var óbeitt. Jón tók svo þegjandi bjóðið sitt og gekk til sjávar. Gísli sjálfur var eitthvað einkennilega þögull. Hann og hásetar hans fóru svo af stað á eftir Jóni. Árni Jónsson, vinur Gísla, gekk í veg fyrir hann og ávarpaði Gísla þessum orðum: „Ætlarðu virkilega að fara að róa út í svona ljótt útlit; það er ekkert vit í því“. Gísli gegndi því engu, en þegar Gísli og félagar hans komu ofan í f jör- una, var Jón búinn að taka undan bátnum allar skorður, og búinn að ýta honum fram undir flæðarmál. Veðurútlit var mjög ískyggilegt; hríðarkólgu- bakki fyrir hafinu, svo heita mátti stórhríðar- útlit. Þeir börðu svo norður fyrir Reykja-Disk- inn, en aldan var alltaf að stækka, eftir því, sem norður eftir kom. En það þurfti að sækja norður á svokallaðan Sand, sem er fiskimið vestur af Drangey. Loks brast á stórviðri með kafaldri; var þá sjálfsagt að snúa við. Engin barlest var í bátnum, svo hann þoldi ekki mikla siglingu, og óvanur maður, sem hélt í klóna (kunni ekki að gefa úr seglinu eftir þörfum); segir svo ekki af siglingunni fyi'r en bátnum hvolfdi norðan við Diskinn (hafa ekki náð fyrir framan hann). Björn Guðmundsson bjargaði sér á sundi í land. Honum gekk mjög erfiðlega að ná fót- festu í sandinum. Þegar hann var búinn að bjarga sér frá sjó, klæddi hann sig úr öllum skinnklæðum; flaug honum þá í hug að reyna ið synda gegnum brimið út að bátnum, því þá sá hann Gísla á kjölnum, og hélt Björn að vegalengdin út að bátnum hefði ekki verið meiri en 100 faðmar. Þó hætti hann við það áform. — Komst hann loks heim, yfirkominn af harmi og þrekaður mjög. Kristín móðir mín var fyrsta manneskjnn, sem tók á móti Birni, því að hún var þá hjá Kristínu móður sinni, seinni konu Gísla. Hún hlynnti að honum eins og hægt var, því enginn karlmaður var heima. Árni Jónsson lét alla karlmenn raða sér með sjónum norður 1BD VÍ KIN G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.