Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1952, Blaðsíða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1952, Blaðsíða 6
Andrés Guöjðnsson: Brennsluhverfillinn í „Auris” í 4. tölublaði Víkings þ. á., bls. 111, er minnst á olíuflutningaskip, er hefur fjóra dieselmótora, en ætlunin væri að taka einn þessara mótora í burtu og láta brennsluhverfil í staðinn. Þetta hefur nú verið gert og kom skipið, sem heitir Auris, til Reykjavíkur 9. júní með olíufarm til h. f. Shell á íslandi. Eigandi Auris er Anglo- Saxon Petroleum Company, sem er eitt af dóttur- félögum Shell, og annast félagið rekstur þeirra 200 —300 skipa, er félagið á. M.s. Auris er að mörgu leyti merkilegt skip, það er fyrsta enska olíuflutningaskipið, sem er drifið með dieselmótorum, er framleiða rafmagn, og rafmagnið drífur svo mótor, sem er ástengdur skrúfunni. Auris, sem er 12,250 tonn að stærð, hljóp af stokk- unum í maí 1947, aflvélar skipsins voru fjórir dieselmótorar af Hawthorn-Sulzer-gerðinni, 8 strokka, einvirkir með þrýstiýrun á eldsneytis- lokun og aukahleðslu (spuercharged), hver mótor er 1105 brennsluhestöfl, ástengdur við 830 kíló- vatta, 3ja fasa, 50 viða, 1600 volta rafal. Skrúfu- mótorinn er 3750 hestöfl og snýr skrúfunni 110—■ 120 snúninga á mínútu. Smíði brennsluhverfilsins stóð lengi yfir og gerð- ar voru ótal tilraunir með hann í verksmiðjum British Thomson Houston, en þar var hann smíð- aður. — Brennsluhverfillinn, sem er 12000 hestöfl að stærð, var settur í skipið haustið 1951 og 28. okt. s. á. lagði skipið úr höfn með þrjá dieselmótora og einn brennsluhverfil sem aflvélar, og var þar með fyrsta verzlunarskipið, er hefur brennsluhverfil innan borðs. Mynd á næstu bls. sýnir brennsluhverfilinn, sem er af hinu svonefnda opna kerfi. Loftþjappan er merkt b. á myndinni og er sérdrifin af háþrýstihverflin- um a, en í gegnum hann fer hið brennda loft, fyrst, og svo í lágþrýstihverfilinn c, er drífur rafalinn d. Hreint loft sogast inn í þjöppuna gegnum e, og fer, eftir að hafa verið þrýst saman til hitarans f., en VÍKINGUR 1E34

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.