Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Side 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Side 8
Störf sjómanna aldrei metin sem skyldi — rætt vid Ingólf Falsson, nýkjörinn forseta F.F.S.I. Það er í mörg horn að líta hjá forseta Farmanna- og fiski- mannasambands íslands. Innan vébanda sambandsins eru fimm- tán félög skipstjórnarmanna, vél- stjóra, bryta og loftskeytamanna víðs vegar á landinu, og félags- menn þeirra eru bæði far- og fiskimenn. Eins og sjá má af ályktunum síðasta þings F.F.S.Í. eru þeir margir málaflokkarnir sem sambandið lætur sig skipta, og mörg málin sem forseti verður að reka og hafa hönd í bagga með, jafnvel þótt kjarasamningar séu ekki á döfinni. Við hittum Ingólf Falsson, nýkjörinn forseta sam- bandsins ekki alls fyrir löngu og röbbuðum við hann um ýmis þau mál, sem efst eru á baugi hjá F.F.S.Í. þessa dagana. Fyrst bar á góma stjórnun fisk- veiða. — Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að það þarf að byggja upp fiskistofnana, sagði Ingólfur. — Því styðjum við stjórnun fiskveiða og virðum til- lögur fiskifræðinga eins og okkur finnst fært hverju sinni. Lítum t.d. á samþykkt síðasta þings okkar þar sem stefnt er að svipuðum hámarksafla og síðast veiddist, eða 340 þúsund tonnum. Þessi samþykkt á tvímælalaust rétt á sér, þegar litið er á tillögur fiski- fræðinga fyrir 1979, en þær hljóð- uðu upp á 280 þúsund tonna há- marksafla, en hann varð í raun 340 þúsund tonn. Nú leggja þeir hins vegar til 300 þúsund tonna hámarksafla, eða 20 þúsund tonnum hærri afla en 1979, svo 8 ekki virðast þau 340 þúsund tonn sem veiddust í fyrra hafa gengið meira en svo á stofninn, að þeir vilja auka veiðina í ár um 15%. Okkar tillögur komu fram áður en fiskifræðingarnir komu með sínar og við teljum þær fyllilega ábyrg- ar. En það er annað í sambandi við fiskfriðun, sem mig langar til að benda á, og sem ég held að fólk geri sér ekki almennt grein fyrir, og það eru fjárhagslegar afleið- ingar hennar fyrir sjómenn. Allar stöðvanir þýða beina kjaraskerð- ingu fyrir sjómenn, því þeir eru kauplausir meðan friðunin stend- ur yfir. Þessu mætti líkja við það, að skrifstofufólk væri sent kaup- laust heim í nokkrar vikur meðan lítið væri að gera. Nú verður til dæmis 10 daga stopp um páskana, og sjómenn verða kauplausir á meðan. Það eru engar stéttir í landinu settar undir þetta aðrar en sjómenn, og að vissu marki út- gerðarmenn. — En víkjum að loðnuveiðinni. Nú ályktaði þing F.F.S.Í. að veiða mætti 400 þúsund tonn á vetrar- vertíð. — Rétt er það. En stjórnvöld heimila 100 þúsund tonna veiði núna og að veiðarnar verði stopp- aðar með tveggja sólarhringa fyrirvara. Nú er ekki vitað hvernig til tekst með veiðarnar. Ef allt verður eðlilegt er skammt í það að veiðunum ljúki. Síðan er ákveðið að leyft skuli að veiða 150—180 þúsund tonn til frystingar og hrognatöku, en sú veiði hefst ekki fyrr en um mánaðamótin febrú- Ingólfur Falsson ar—mars og er háð ýmsum óvissuþáttum, svo sem tíðarfari meðan loðnan gengur upp að landinu og óvissu í dag varðandi sölu á hrognum. En ef veiðin gengur að óskum þá er henni lok- ið í mars og loðnuflotinn hefur þá ekkert að gera fyrr en í ágúst á þessu ári. Það er oft og mikið talað um tekjur loðnusjómanna. Það er rétt að þær eru dágóðar meðan á veiðunum stendur, en útlit er fyrir að þær standi aðeins tvo mánuði fyrstu sjö mánuði ársins. Mann- skapurinn er bundinn bátunum, sem flestir eru vanbúnir til ann- arra veiða, þannig að þegar upp er staðið þá eru tekjur loðnusjó- mannanna ekkert til að hrópa húrra fyrir. En svo að ég víki að síldinni þá ályktaði þing okkar að auka bæri síldveiðar verulega á næsta hausti og er sú ályktun byggð á þeirri VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.