Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Side 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Side 19
við að stækka trollkjaftinn enn, án þess að trollið verði þyngra í drætti. Þetta er gert annars vegar með því að nota ekki net fremst í trollinu heldur kaðla, sem liggja samsíða frá belgnum fram í rand- línur trollopsins og hins vegar með því að stækka möskvana von úr viti allt upp í 30 metra. Á þennan hátt má stækka trollin allt upp í um 40x60 m, án þess að togviðnámið aukist. Er þá fljótséð, að mun auðveldara hlýtur að vera að fá fiskinn inn í trollopið, en það er þó skammgóður vermir, ef hann sleppur út á milli kaðlanna eða út um hina risastóru möskva. Augljóslega er því ómaksins vert að prófa þessar trollgerðir við mismunandi aðstæður. Um þær prófanir er norrænt samstarf, sem eingöngu beinist að kolmunna. Norðmenn og Færeyingar hafa tekið að sér að prófa stórmöskva- trollin er íslendingar kaðlatrollin og reyndar einnig botnvörpur. Samstarf þetta tekur einnig til geymslu og verkunar kolmunna til manneldis en eðlilega verður ekki fjallað um þá hlið mála í þessarri grein. Norræni iðnaðarsjóðurinn styður þessar rannsóknir. Hér á eftir verður leitast við að gera stuttlega grein fyrir þeim veiðar- færarannsóknum, sem til þessa hafa farið fram á vegum Nord- forsk. Einnig verður lítillega minnst á framtíðaráform og möguleika. V eiðarf ærarannsóknir Fyrstu tilraunir íslendinga til að veiða kolmunna munu hafa verið gerðar 1972, er ms. Eldborgu GK 13 var haldið úti í maí — júní með nót að veiðarfæri. Aflinn varð á 7. hundrað tonn. Síðan hafa ýmsar veiðitilraunir verið gerðar, t.d. á bv. Runólfi sumarið 1976. Sum- arið 1977 var ms. Börkur gerður út á kolmunna í tilraunaskyni. Tvö síðastliðin sumur hafa nokkrir bátar stundað kolmunnaveiðar í júlí—ágúst. Sumarið 1978 voru nokkrar veiðarfærarannsóknir gerðar á ms. Grindvíkingi. Einkum var þar um flutning á afla á milli skipa að ræða. Niðurstöður liggja fyrir t.d. í greininni:„Tilrauna- veiðar á kolmunna á ms. Grind- víkingi í Héraðsflóadjúpi sumarið 1978“. Sjávarfréttiró (10), 36—41. Til tilraunanna í sumar var ms. Óli Óskars tekinn á leigu frá 12.—31. júlí. Tilgangurinn var að bera saman veiðihæfni kaðlatrolls og venjulegs íslensks kolmunna- trolls. Þessutan átti að bera þessi troll saman við þau troll sem hin skipin notuðu en þau voru af ýmsu tagi, eins og 1. tafla ber með sér. Sér- staka athygli vekur, að tvö skip- anna voru með stórmöskvatroll, annað með 16 m möskva en hitt með 6-hyrnda möskva með 30 m möskvastærð. Sem kunnugt er var sjórinn milli Færeyja og íslands mjög kaldur í vor. Af þeim sökum gekk kol- munninn mjög seint á Aust- fjarðamið. Fram að 18. júlí fannst tæpast neinn kolmunni og frá 25.—30. júlí var kolmunninn annað hvort mjög dreifður eða lá svo þétt við botn að hann náðist ekki í flottroll. Dagana 25.—27. var stórstreymt og samkvæmt reynslu síðustu ára minnkar aflinn þegar svo er, en aðeins í 1—2 daga. Það kann því fleira að hafa komið til í sumar. E,t.v. á kuldinn í sjónum hér einhvern hluta að máli en vera má að góð fæðuskilyrði skipti einnig máli. Fiskur getur átt það til að leggjast á meltuna eins og sagt er. Meðhöndlun á kaðlatrollinu hef- ur sýnt sig að vera nokkuð torveld einkum á hringnótaskipum, sem hafa verið útbúin til flotvörpu- veiða. Ástæðan er sú, að net- tromman er staðsett mjög aftar- lega, þannig að mjög lítið rúm er til að greiða kaðlana í sundur, ef þeir liggja eitthvað óklárir. Þá er tromman tiltölulega hátt yfir sjónum þannig að kaðlarnir mynda nokkuð stórt horn við sjávarflötinn, þegar kastað er. Af þeim sökum vilja kaðlarnir nokk- uð flækjast saman og einkum hættir þeim við að flækjast í kúl- unum á höfuðlínunni. Þessi vandamál tókst að leysa með því að taka allar kúlur af höfuðlín- unni og setja þar í staðinn 2 belgi sem voru í svo löngum stroffum, að belgirni'r lentu aftan við kaðl- ana í köstun. Með þessu móti tókst að koma í veg fyrir flækjur. Enn fremur reyndist vel að lengja neðri grandarana nokkuð fram yfir það, sem gert er ráð fyrir. Meira átak kom þá á höfuðlínuna og minna á neðri grandarana, þannig að lóðin sukku betur. Kaðlarnir dragast þá betur hver frá öðrum áður en köstun hefst. Þrátt fyrir þessar breytingar voru enn veikir punktar. Þegar snúið er hafa kaðlarnir tilhneigingu til að flækjast saman. Auknu átaki á Mesta möskvastærð og ummál flotvarpna þeirra, sem íslensk skip not- uðu við kolmunnaveiðarnar sumarið 1979. Bjarni Ólafsson Mesta möskvastærð (m) 1.6 Ummál (m) 608 Eldborg 3.2 770 Grindvíkingur 1.6/30 608/823 Jón Kjartansson 0.8/1.6 450/608 Óli Óskars 0.8/kaðlavarpa 608/... Víkingur 1.0/16 550/880 VÍKINGUR 19

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.