Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Blaðsíða 43
þær skorður sem í bátnum voru og
fór með þær fram í barka og bjó
þar til eins konar rimlarúm fyrir
mig að liggja á. Hann kom nú
aftur eftir bátnum til mín laut
niður að mér og spurði:
Hvar finnur þú mest til?
Mér er öllum svo kalt, svaraði
ég. Ég er svo blautur í fæturna af
því sinnsokkarnir eru svo lekir.
Hann brá sér nú úr skinnsokk-
um sínum og klæddi sig úr sokk-
unum, tók skinnsokkaræflana af
fótum mér og sokkana sem orðnir
voru rennblautir, kallaði svo til
Hinriks sem sat á mastursþóft-
unni:
Þú verður að fara úr jakkanum
Hinni, brjóttu hann saman og
lánaðu honum bróður þínum
hann undir höfuðið. Þú ert í góðri
peysu og ættir ekki að krókna
meðan við komumst inneftir.
Hann tók svo borðið sem hann
hafði notað undir lóðirnar meðan
við vorum að leggja og kastaði því
til Hinriks og sagði honum að
leggja það ofan á skorðurnar.
Síðan tók hann mig í fangið og bar
mig fram í barkann um leið og
hann sagði Hinrik að gera seglið
og fokkuna klára. Ég sá hann svo
setja stýrið fyrir og Hinrik var bú-
inn að koma seglum upp og var að
ganga frá fokkunni. Pabbi klæddi
sig síðan úr sokkunum því hann
var í tvennum og dró þá á fætur
mér. Sokkarnir voru volgir af fót-
um hans og fann ég glöggt að mér
leið strax betur. Pabbi lagði svo
olíusvuntu yfir mig og hlýjaði hún
mér dálítið. Ég sá hann svo taka
dálítið í skautið á seglinu um leið
og hann sagði við Hinrik.
Ég trúi ekki öðru en að okkur
taki fyrir Oddatána ef hann ekki
lægir vindinn. Við komumst að
minnsta kosti alltaf undir Ófæru-
nefið og getum þá tekið einn slag
yfir. Hafðu nú gát á Hjölla á leið-
inni. Gáðu að hvort það heldur
áfram að blæða.
Hinrik kom fram til mín og
spurði mig hvort mér liði betur
núna. Ég sagði honum að mér liði
nú mikið betur en mér væri kalt á
höndunum og bað hann að gá að
vettlingunum mínum.
Ég held þeir hafi ekki verið
mikið blautir sagði ég.
En Hinrik dró strax vettlinga
sína af höndum sér og lét þá á mig
og nú leið mér eftir ástæðum all-
vel. Ég spurði Hinna hvort þeir
gætu siglt alla leið.
Pabbi heldur það, sagði Hinrik.
Ef vindurinn helst svona jafn.
Pabbi kallaði til Hinriks að
Teikning: Katrfn Briem
VÍKINGUR 43