Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Side 31
hefir gengið um fjarstýringu þess-
ara tækja en æskilegt hefði verið.
Á fimmtugasta starfsári
Reykjavíkur radíós voru tekin í
notkun örbylgjutæki til talvið-
skipta, staðsett á Þorbjarnarfelli
við Grindavík. Þjónusta á stutt-
bylgju talsambandi var nú allan
sólarhringinn og 18 klst. á sólar-
hring á morse en fréttaskeyti var
sent þar út fjórunt sinnum á sól-
arhring. Veðurfregnir voru sendar
út fjórum sinnum á morse, á
langbylgju, og einu sinni á nóttu
voru sendar út veðurfregnir á tali
frá Veðurstofu íslands um
Reykjavíkur radíó.
Hinn 24. maí 1968 var gefin út
reglugerð um tilkynningaskyldu
íslenskra skipa. Varð þessi þáttur
þjónustunnar fljótlega mjög um-
fangsmikill en öll þessi auknu
umsvif útheimtu aukið starfslið og
í árslok 1968 var það orðið 12
manns.
Skeytafjöldi var það ár 23.074
og samtalafjöldi 24.537.
Nú, í árslok 1979, eftir 61 og
hálfs árs starfsemi Reykjavíkur
radíós, er þjónustan í grundvall-
aratriðum enn hin sama, að gæta
öryggis sæfarenda og sjá fyrir
fjarskiptatengslum milli þeirra og
vandamanna, vina, útgerða og
viðskiptamanna í landi, bæði hér-
lendis og erlendis.
Að sjálfsögðu hafa orðið geysi-
legar breytingar á viðskipta-
möguleikum gegnum árin, eins og
sjá má af framansögðu, enda
mikil aukning á viðskiptamagni.
Stöðin hefir nú yfir að ráða 5
viðskiptarásum á örbylgju, fjar-
stýrðum tækjum staðsettum á
Þorbirni, Akranesi og í Stykkis-
hólmi. Fjórum sendum fyrir
morseviðskipti á stuttbylgju, en
nú eru þar fréttasendingar tvisvar
á sólarhring. Tveimur nýjum
sendum til talafgreiðslu á stutt-
bylgju og er um þá haldið uppi
útvarpi hádegis fréttaútsendingu
Ríkisútvarpsins. Millibylgjusenda
Reykjavíkur radíó, stöðin í Gufunesi
staðsetta á Rjúpnahæð, í Gróttu, á
Suðurnesi (Seltj.nesi), í Grindavík
og á Ingjaldshóli. Tveimur lang-
bylgjusendum til skeytaviðskipta
á morse og annarrar almennrar
þjónustu, sem er þó ekki full-
nægjandi m.a. með tilliti til þess
Tilkynningar um siglingar-
hættu, t.d. vegna íss, sendir
Reykjavíkur radíó út ef .þær
berast stöðinni, t.a.m. frá
skipum, Veðurstofunni,
Hafna- og vitamálaskrifstof-
unni eða Landhelgisgæslunni.
Þær eru þá sendar bæði á tali
og morsi. Þessi þáttur starfsins
er þó mjög laus í reipunum.
að lögð hefir verið niður morse-
þjónusta á hinum strandarstöðv-
unum. En úr þessu er verið að
bæta með nýjum sendi, sem mun
verða tekinn í notkun innan
skamms. Þá er langbylgjusendir
fyrir morseútsendingar á veður-
fregnum, sem eru fjórar á sólar-
hring, og ein útsending á tali á
nóttunni.
Viðtökuhliðarinnar er einnig
vel gætt með fjölda viðtækja, bæði
í Gufunesi og á ýmsurn stöðum úti
á landsbyggðinni, fjarstýrðum frá
TFA, svo sem Ingjaldshóli,
Stykkishólmi, Þorbirni, Grinda-
vík og Höfn í Hornafirði.
Hlustavarsla er á 10—15 tíðn-
um samtímis allan sólarhringinn
og á allt að 4 viðtækjum, mis-
munandi staðsettum, á sumurn
tíðnanna, þannig að viðtækin sem
hlustað er á hverju sinni munu
vera 25—30 samtals.
Á síðasta ári, 1978, fóru um
stöðina 23.240 almenn skeyti,
45.509 skeyti vegna tilkynninga-
skyldu íslenskra skipa og 54.429
símtöl voru afgreidd til og frá
skipum, innlendum og erlendum,
innanlands og utan. Auk allskon-
ar annarar þjónustu m.a. öryggis-
og neyðarafgreiðslu.
Að sjálfsögðu hefir orðið að sjá
við hinu aukna afgreiðslumagni
og þörf með auknum tækjakosti
og starfsliði. Starfslið það er nú
vinnur beint við afgreiðsluna er
orðið 17 manns, auk þjónustunnar
á Rjúpnahæð, viðhaldsþjónustu,
skrifstofu- og stjórnunarstarfa.
Svo sem getið var hér í upphafi
var fyrsti stöðvarstjóri Reykjavík-
VÍKINGUR
31